Mervyn King segir enn vera hættu á bankakreppu

Mervyn King, fyrr­ver­andi banka­stjóri Eng­lands­banka, seðla­banka Bret­landseyja, segir enn vera hættu á því að alþjóð­leg banka­kreppa geri vart við sig á nýjan leika og að fjár­mála­kerfi heims­ins séu enn veik­burða. Þetta kemur fram í við­tali sem breska rík­is­út­varpið BBC tók við King.

„Það fer gegn heil­brigðri skyn­semi að halda að við getum haldið vöxtum niðri til eilífðar,“ segir King meðal ann­ars í við­tali við BBC, en Eng­lands­banki hefur haldið vöxtum við örlítið fyrir ofan núllið í fimm ár frá því fjár­málakreppan náði hámarki, í von um að örva hag­kerfið og styðja við hag­vöxt.

King var á dög­unum gesta­rit­stjóri á Radio 4, einni af útvarps­rásum BBC, og tók við­tal við Ben Bernanke, fyrr­ver­andi banka­stjóra Seðla­banka Banda­ríkj­anna, í Washington DC þar sem þeir ræða um stöðu efna­hags­mála í heim­inum. Viðtalið var birt á vef BBC í dag.

Í við­tal­inu ræða þeir um aðgerð­irnar sem seðla­bankar gripu til fyrir fimm árum og hvernig þær hafa reynst á síð­ustu árum. Þeir eru báðir sam­mála um að vel hafi tek­ist til, og hlut­irnir hefðu getað farið á miklu verri veg fyrir heims­bú­skap­inn. Þá segir Bernanke að ekki hafi verið leyst úr öllum vanda­málum ennþá og þau geti orðið ill­við­ráð­an­leg á nýjan leik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár