Ellefu lífeyrissjóðir á meðal eigenda að um 20 prósent hlut í 365

Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn eru á meðal ell­efu líf­eyr­is­sjóða sem eru nú óbeinir eig­endur að hlut í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu 365 miðlum í gegnum Auði 1 fag­fjár­fest­inga­sjóð. Alls eru eig­endur sjóðs­ins, sem á 18,6 pró­sent beinan hlut í 365 miðlum, 26 tals­ins. Einn þeirra, AC eign­ar­hald hf., á meira en tíu pró­sent hlut í sjóðnum. Það er félag í eigu margra stærstu hlut­hafa og stjórn­enda Virð­ingar, fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu sem stýrir Auði 1 sjóðnum. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Auðar 1 fyrir árið 2013 sem Kjarninn hefur undir höndum.

Kjarninn greindi frá því 18. des­em­ber að fjöl­miðla­nefnd hefði óskað eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eign­ar­hald Auðar 1 í 365 miðlum, í kjöl­far umfjöll­unar Kjarnans um málið. Áður hafði nefndin tekið ákvörðun um að fara ekki fram á þær upp­lýs­ingar.

Erindi þess efnis var sent til Sævars Freys Þrá­ins­sonar, for­stjóra 365 miðla, og Einars Þórs Sverr­is­sonar, lög­manns og stjórn­ar­manns 365 miðla, og fengu þeir frest til 5. jan­úar til að svara erind­inu.

Lífeyrissjóðir eiga mikið


Fyrr í þessum mán­uði var send út til­kynn­ing um að 365 miðlar, langstærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, og Tal hafi sam­ein­ast undir merkjum 365 eftir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykkti sam­runa félag­anna, með skil­yrðum. Við það eign­uð­ust fyrrum hlut­hafar Tals 19,8 pró­sent hlut í sam­ein­uðu félagi, sem mun bera nafn 365 miðla. Stærsti eig­andi Tals er Auður 1, sjóður í stýr­ingu hjá Virðingu, en hann á 18,6 pró­sent beinan hlut í 365 miðlum eftir að sam­run­inn gekk í gegn. Líkt og tíðkast með fram­taks- og fjár­fest­inga­sjóði er eign­ar­hald hans ekki opin­bert.

Í árs­reikn­ingi Auðar 1 kemur hins vegar fram að á meðal eig­enda sjóðs­ins séu ell­efu líf­eyr­is­sjóðir. Þeir eru Stafir, LSR, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda, Sam­ein­aði líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Lífsverk líf­eyr­is­sjóður, Festa, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna sveit­ar­fé­laga, Stapi og Líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja.

[caption id="attachment_6771" align="alignnone" width="730"] Sævar Freyr Þrá­ins­son er for­stjóri 365 miðla.[/caption]

Auk þess eiga 15 aðrir aðilar hlut í sjóðnum, sem átti eignir upp á rúma 3,4 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Einungis einn þeirra er nefndur í árs­reikn­ingnum. Það er AC eign­ar­hald hf., sem á 10,6 pró­sent í Auði 1 og er stærsti ein­staki eig­andi sjóðs­ins. AC eign­ar­hald varð til við upp­skipt­ingu á Auði Capital þegar sá banki sam­ein­að­ist Virðingu. Upp­skipt­ingin gekk í gegn í árs­byrjun 2014.

Alls eru hlut­hafar í AC eign­ar­haldi 36 tals­ins. Þar af eiga tíu stærstu tæp­lega 70 pró­sent. Um er að ræða hóp­inn sem var á meðal stærstu hlut­hafa í Auði Capital fyrir sam­ein­ing­una við Virðingu. Hann sam­anstendur meðal ann­ars af félagi í eigu Krist­ínar Pét­urs­dóttur, félagi í eigu Ármanns Þor­valds­sonar og með­fjár­festa, félagi í eigu Krist­ínar Jóhann­es­dóttur og Ásu Karenar Ásgeirs­dóttur (systur og móður Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, eig­in­manns aðal­eig­anda 365), félag í eigu Vil­hjálms Þor­steins­sonar, félag í eigu fyrrum eig­enda Tinda verð­bréfa (m.a. Hjör­leifs Jak­obs­sonar og félags í helm­ings eigu Jakobs Valgeirs Flosa­sonar), Hannesi Frímanni Hrólfs­syni, for­stjóra Virð­ingar, og Ingunni Wernersdóttur.

Langstærsti ein­staki eig­andi 365 miðla er Ingi­björg Pálma­dóttir og félög á hennar vegum með tæp­lega 80 pró­sent eign­ar­hlut. Ingi­björg og félög hennar eiga einnig 100 pró­sent B-hluta­bréfa í 365 miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár