Sprotar úr Startup Reykjavík hafa sótt 650 milljónir króna

Sprota­fyr­ir­tæki sem farið hafa í gegnum Startup Reykja­vík við­skipta­hrað­al­inn, sem Arion banki og Klak Innovit standa að, hafa sótt sér 650 millj­ónir króna frá því að hann hófst árið 2012. Megnið af fénu hefur komið í gegnum fram­lög úr styrktar- og rann­sókn­ar­sjóðum, en einnig frá nýjum hlut­höfum og fjár­festum. Samtals eru sprota­fyr­ir­tækin 37 sem hafa náð sér í þetta fjár­magn. Einar Gunnar Guð­munds­son, sem hefur nýsköp­un­ar­mál hjá Arion banki á sinni könnu, segir það eitt og sér vera mik­inn og aug­ljósan ávinn­ing af við­skipta­hraðl­inum til þessa. Margt annað megi nefna sem árangur, eins og fjölda nýrra starfa hjá þessum fyr­ir­tækjum.

Hann segir verk­efnið hafa verið lær­dóms­ríkt og án nokk­urs vafa hjálpað til við að örva sprota- og nýsköp­un­ar­um­hverfið á Íslandi eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, og að það sé líf­legt um þessar mundir. „Við erum ótrú­lega ánægð og stolt af þessu,“ segir Einar Gunnar. Nauð­syn­legt sé þó að styrkja aðgengi sprota­fyr­ir­tækja að fjár­magni, og bindur Einar Gunnar vonir við stofnun nýrra fjár­fest­inga­sjóða í þeim efnum. Til fram­tíðar þurfi að leita út fyrir land­stein­anna og einnig að fá fjár­festa hér á landi til þess að sýna þessum geira meiri áhuga.

Markmið aðstand­enda Startup Reykja­vík sé að horfa til langrar fram­tíðar, eins og þurfi að gera þegar um er að ræða frum­kvöðla- og nýsköp­un­ar­starf.

Kjarninn hefur fylgt Startup Reykja­vík verk­efn­inu eftir á þessu ári, og fjall­aði meðal ann­ars um öll fyr­ir­tækin sem fóru í gegnum hrað­al­inn, og fleiri fyr­ir­tæki sem hafa farið í gegnum það sárs­auka­fulla ferli að koma fót­unum undir starf­semi alveg frá hug­mynda­stigi. Þá voru fyr­ir­tæki heim­sótt sem hafa verið að náð miklum árangri í innra starfi þegar kemur að nýsköpun við vöru­þróun, og má þar meðal ann­ars nefna TM Software, sem hefur marg­faldað umsvif sín eftir að starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins byggðu upp Tempo hug­bún­að­inn, sem í dag er seldur til meira en sex þús­und við­skipta­vina um allan heim.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar hjá sumum fyr­ir­tækj­anna á þeim tíma sem Kjarninn byrj­aði að fjalla mark­visst um starf­sem­ina, og eru þau nú mörg hver að vinna að því að sækja sér fé til vaxtar og upp­bygg­ingar.

https://vimeo.com/115519990

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár