Jón Gnarr segist „volgur“ fyrir því að bjóða sig fram til forseta Íslands

Jón Gnarr, fyrrum borg­ar­stjóri Reykja­víkur og annar helm­ingur Tvíhöfða, seg­ist „volgur“ fyrir því að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands árið 2016. Þetta kom fram í þætt­inum Viku­lokin á Rás 1 í dag.

Helgi Seljan, umsjón­ar­maður þátt­ar­ins, spurði Jón út í mögu­legt for­seta­fram­boð og Jón svar­aði því til að fram­boð hans væri eitt­hvað sem mörgum þætti gaman. Hann væri hins vegar ekki að hugsa mikið um það núna vegna þess að honum þætti það ekki alveg tíma­bært.

Helgi spurði Jón síðan hvort hann væri „volgur“ fyrir því að bjóða sig fram. Jón svar­aði: „Já, ég er volgur“.

Könnun sýndi miklar vinsældir Jóns


Í könnun sem Frétta­blaðið fram­kvæmdi í byrjun nóv­em­ber kom í ljós að flestir Íslend­ingar vilja að Jón Gnarr taki við af Ólafi Ragnari Gríms­syni sem for­seti Íslands. Alls sögð­ust 47 pró­sent þeirra sem svör­uðu að þeir vildu Jón Gnarr sem næsta for­seta. Ragna Árna­dóttir var nefnd næstoft­ast, en níu pró­sent þeirra sem svör­uðu vilja hana í for­seta­stól­inn.

Í sam­tali við Frétta­blaðið eftir að nið­ur­staða könn­un­ar­innar lá fyrir sagð­ist Jón Gnarr snort­inn yfir nið­ur­stöð­unni. Hann hafi ekki velt fram­boði fyrir sér en segir að nið­ur­stöð­urnar verði til þess að hann muni leggj­ast undir feld og ræða málin við fjöl­skyld­una sína. Nú seg­ist hann hins vegar „volgur“ fyrir því að bjóða sig fram.

Í Viku­lok­unum kom einnig fram að Jóni finn­ist hljóð­brot sem Rósetta, gervi­tunglið sem hring­sól­aði um hala­stjörn­una 67P/Churyumov-Ger­asi­menko, hefur numið með fjöl­breyttum mæli­tækjum sínum lag árs­ins.

Jón Gnarr er annar helm­ingur Tvíhöfða, sem er með viku­lega hlað­varps­þætti á Kjarninn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár