Löfven mun tilkynna í dag að hætt hafi verið við nýjar kosningar

Sænska dag­blaðið Expressen greinir frá því á vef sínum að boð­aðar kosn­ingar,sem áttu að fara fram 22. mars 2015, verði ekki haldnar. Búið er að boða til blaða­manna­fundar klukkan 10:30 þar sem Stefan Löfven for­sæt­is­ráð­herra, og leið­togi Jafn­að­ar­manna í Svíþjóð, mun til­kynna um þetta. Með honum á fund­inum verða for­svars­menn sænsku borg­ara­flokk­anna, sem sitja ekki í rík­is­stjórn.

Löfven hafði boðað til kosn­inga fyrr í des­em­ber­mán­uði í kjöl­far þess að minni­hluta­stjórn undir hans for­sæti mistókst að koma fyrsta fjár­laga­frum­varpi sínu í gegnum þingið, en hún tók við völdum í kjöl­far þing­kosn­inga sem fóru fram í sept­em­ber síð­ast­liðnum.

Skoð­anna­kann­anir bentu til þess að Sví­þjoða­demókratar, flokkur þjóð­ern­is­sinna sem vill herða mjög inn­flytj­enda­lög­gjöf lands­ins, myndi styrkja sig mjög ef kosið yrði aftur í mars. Flokk­ur­inn vann stór­sigur í síð­ustu kosn­ingum þegar hann fékk 12,9 pró­sent atkvæða, sem er það mesta sem hann hefur nokkru sinni hlotið.

Und­an­farna daga hafa rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir í Svíþjóð átt í við­ræðum við borg­ara­flokk­anna í land­inu um stuðn­ing við að koma fjár­laga­frum­varp­inu í gegnum sænska þingið. Full­trúar þeirra verða með Löfven á blaða­manna­fund­inum á eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár