„Ég fæ enn kökk í hálsinn þegar ég hugsa um örvæntinguna“

„Tíu ár og ég fæ enn kökk í háls­inn þegar ég hugsa um örvænt­ing­una sem ríkti hjá þeim sem voru að leita að fjöl­skyldu­með­limum, þá sem sátu stjarfir og horfðu út í loftið eftir missi, þá sem sögðu manni sögur af börn­unum sem þeir gátu ekki bjargað og horfðu á hverfa í flóð­bylgj­unni og svo mætti áfram telja. Reglu­lega sé ég þetta fyrir mér, heyri grát­inn, sé til­kynn­inga­töfl­urnar þar sem fólk aug­lýsti eftir sínum nán­ustu, finn lykt­ina....“

Þetta segir Stein­grímur Sævarr Ólafsson á Facebook síðu sinni í dag, í til­efni af því að tíu ár eru frá einum mann­skæð­ustu nátt­úru­ham­förum í sög­unni, þegar um tvö hund­ruð þús­und manns lét­ust þegar flóð­bylgja skall á Tælandi og eyjum í nágrenni. Stein­grímur Sævarr var í hópi Íslend­inga sem voru sendir á svæðið fljót­lega eftir atburð­ina hörmu­legu til að aðstoða fólk á svæð­inu.

https://www.youtube.com/watch?v=RDOuwMj7Xzo
Á síðu sinni lýsir Stein­grímur Sævarr því sem fyrir augu bar með áhrifa­miklum hætti, og segir ferð­ina hafa gjör­breytt við­horfi sínu til lífs­ins. Orðrétt segir hann:

„Fyrir tíu árum sléttum sat ég heima hjá mér að hita upp jóla­graut­inn og narta í síð­ustu rjúpna­lærin, algjör­lega grun­laus um þær skelfi­legu ham­farir sem voru að bresta á í Asíu þegar flóð­bylgjan mikla skall á með þeim afleið­ingum að um 200.000 manns lét­ust.

[caption id="attachment_15401" align="alignleft" width="218"] Stein­grímur Sævarr Ólafsson.[/caption]

Enn síður grun­aði mig að milli jóla og nýárs fengi ég sím­tal úr for­sæt­is­ráðu­neyt­inu þar sem ég var beð­inn um að fara í sjúkra­flug til Tælands til að sækja slas­aða Svía og flytja til síns heima.

Hópurinn sem fór út var gríðarlega vel skip­aður læknum, hjúkr­un­ar­fólki, björg­un­ar­sveit­ar­mönnum, skipu­leggj­endum, starfs­mönnum sjúkra­bíla og svo mætti áfram telja. Og þá vant­aði einn sem gæti verið tengiliður milli yfir­valda á Íslandi, Tælandi og í Svíþjóð, ein­hvern sem gæti mögu­lega kjaftað sig út úr óvæntum vand­ræðum, ein­hvern sem gæti bjargað sér á skand­in­av­ísku, ein­hvern sem gæti skrifað um þetta og miðlað áfram. Símtalið sem mér barst kom mér jafn mikið á óvart og fjöl­skyld­unni, sem eftir stutta umhugsun, gaf blessun sína fyrir því að ég tæki verk­efnið að mér. Dagarnir sem í hönd fóru fyrir sléttum tíu árum eru jafn skýrir og þeir hefðu gerst fyrir ári síðan. Skyndikúrsar í hinu og þessu, bólu­setn­ingar, skipu­lagn­ing­ar­fundir, kynn­ast hetj­unum sem sinntu alvöru verk­efn­unum í ferð­inni og síð­ast en ekki síst að und­ir­búa sig and­lega.

Eins og maður hefði getað und­ir­búið sig undir það sem blasti við manni við kom­una til Tælands.

Tíu ár og ég fæ enn kökk í háls­inn þegar ég hugsa um örvænt­ing­una sem ríkti hjá þeim sem voru að leita að fjöl­skyldu­með­limum, þá sem sátu stjarfir og horfðu út í loftið eftir missi, þá sem sögðu manni sögur af börn­unum sem þeir gátu ekki bjargað og horfðu á hverfa í flóð­bylgj­unni og svo mætti áfram telja. Reglu­lega sé ég þetta fyrir mér, heyri grát­inn, sé til­kynn­inga­töfl­urnar þar sem fólk aug­lýsti eftir sínum nán­ustu, finn lykt­ina...

Það er óhætt að segja að þetta hafi verið ferða­lag sem ég kom ekki samur til baka úr. Hún ger­breytti lífs­við­horfi mínu, hug­myndum mínum um verð­mæti, vin­áttu, fjöl­skyldu­bönd og raunar öllu.

Þú getur ekki breytt gær­deg­inum og þú veist ekki hvernig morg­un­dag­ur­inn er; nýttu dag­inn í dag til hins ítrasta til að gera góða hluti, leyfa fjöl­skyldu og vinum að finna að þú ert til staðar. Dagurinn í dag skiptir máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár