Áhrifamestu myndirnar: Ótrúlegt haglél og hörmungar víða

Tímartið Time tók saman lista yfir tíu áhrifa­mestu myndir árs­ins 2014, ásamt því að ljós­mynd­ar­arnir segja sög­una að baki mynd­unum. Þeir eru sumir hverjir atvinnu­ljós­mynd­arar á meðan aðrir náðu að fanga augna­blikið fyrir til­viljun. Það gerði meðal ann­ars tví­tug stúlka í Síberíu, Nikita Dudnik, sem náði mögn­uðum myndum af stór­hættu­legu hagléli sem kom eins og þruma úr heið­skíru lofti á óvenju­heitum degi í sumar í Síberíu. Fólk sést á mynd­inni reyna að forða sér í skjól af bað­strönd, en hún stóð sjálf undir járn­braki og mynd­aði.

https://www.youtube.com/watch?v=ZupxB6JKdn8

Á list­anum eru líka áhrifa­miklar myndir sem náð­ust af hörm­ung­ar­at­burðum í Afríku, þar sem ebólu­far­aldur lagði líf fólks í rúst. Þá eru einnig myndir af átökum við liðs­menn Íslamska rík­is­ins, þar sem ljós­mynd­arar voru sjálfir í stór­hættu með her­mönnum á vett­vangi, af Gaza-svæð­inu og af bátum flótta­manna frá Afríku úti fyrir strönd Ítalíu.

Í list­anum er síðan fræg „sel­fie“ mynd sem leik­ar­inn Bradley Cooper tók á Ósk­arsverð­launa­há­tíð­inni.

TIME picks the top 10 photos of 2014 http://t.co/XlrvpVRCri Photo: Massimo Sestini—Polaris pic.twitter.com/6M0QEIw7lu

— TIME.com (@TIME) December 26, 2014

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár