The Interview verður sýnd, fagnað eins og frelsisbaráttusigri

Sony Pictures kvik­mynda­fram­leið­and­inn hefur ákveðið að sýna kvik­mynd­ina umdeilu The Interview í völdum kvik­mynda­húsum á jóla­dag. Sony hafði áður til­kynnt að myndin yrði ekki sýnd vegna hót­anna, sem taldar eru runnar undan rifjum stjórn­valda í Norður Kóreu, um að hryðju­verk yrðu framin ef myndin yrði sýnd. Ástæðan er sú að sögu­þráður The Interview snýst um áætlun tveggja banda­rískra blaða­manna að drepa leið­toga asíska ein­ræð­is­rík­is­ins, Kim Jong Un. Auk þess er leið­tog­inn sýndur sem hinn mesti fáráður.

Nú hefur verið ákveðið að myndin verði tekin til sýn­inga og því hefur verið fagnað Í Banda­ríkj­unum sem miklum sigri fyrir frelsið. Barack Obama, for­seti lands­ins, hafði gagn­rýnt ákvörðun Sony um að láta undan kröfum Norður Kóreu-manna, lýsti yfir mik­illi ánægju með það að myndin yrði sýnd. Tals­maður hans sagði við við frétta­menn í gær að Banda­ríkin væru land sem tryði á mál­frelsi og rétt lista­manna til að tjá sig. Því væri við­snún­ingur Sony og þeirra kvik­mynda­húsa sem ætla að taka mynd­ina til sýn­inga mjög ánægju­legur.

Seth Rogen, annar aðal­leik­ari mynd­ar­innar, var líka ánægður. Hann setti eft­ir­far­andi skila­boð á Twitter í gær:

The people have spo­ken! Freedom has prevailed! Sony didn't give up! The Interview will be shown at thea­ters willing to play it on Xmas day!

— Seth Rogen (@Sethrogen) December 23, 2014

Besta kvikmynd sögunnar...samkvæmt IMDB

Ljóst er að The Interview hefði aldrei fengið jafn mikla athygli og raun ber vitni ef kvik­mynda­fram­leið­and­inn Sony Pictures hefði ekki orðið fyrir stór­felldri tölvu­árás í nóv­em­ber. Þar var trún­að­ar­gögnum og ein­tökum af óút­gefnum kvik­myndum stolið. Hluti þess­arra gagna var síðan lekið út og ollu miklu fjaðrafoki.

https://www.youtube.com/watch?v=DkJA1rb8Nxo

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI seg­ist hafa fengið það stað­fest að Norður Kórea standi að baki tölvu­árásinni og að ástæðan sé umrædd kvik­mynd, The Interview. Stjórn­völd í Norður Kóreu hafa reyndar neitað þessu stað­fast­lega en Banda­ríkja­menn virð­ast vissir í sinni sök. Ákvörðun Sony Pictures um að fresta sýn­ingu mynd­ar­innar vegna hót­anna um hryðju­verk hefur verið harð­lega gagn­rýnd.

Þessi gagn­rýni hefur verið sett fram með ýmsum hætti. Til að mynda hafa rúm­lega 40 þús­und manns gefið mynd­inni 10 í ein­kunn á vefnum Internet Movie Data Base, eða IMDB. Þar er með­al­ein­kunn hennar 9,9 og sam­kvæmt því er hún besta kvik­mynd sög­unnar. Sem hefur vakið athygli því að hún hefur ekki, líkt og áður sagði, verið sýnd almenn­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár