Félag Samherja í Jónshúsi í Köben tók við peningum frá Kýpur

Samherji ætlaði sér að opna skrif­stofu í Kaupmanna­höfn og lét eiginmann forstöðu­manns Jónshúss, Hrannar Hólm, sjá um stofnun félagsins. Samherja­skjölin sýna milli­færslur til félagsins frá Kýpur. Félagið á Kýpur tók líka við peningum frá Namibíu og milli­færði fé í skatta­skjól.

Greiðsla til félags í Jónshúsi
Greiðsla til félags í Jónshúsi Sam­herj­a­skjölin sýna milli­færslu frá Kýp­ur­fé­lagi Samherja, sem meðal ann­ars átti í við­skiptum við félag Samherja í Namibíu og í skatta­skjól­inu Máritíus, til eign­ar­halds­fé­lags Samherja sem skráð var í Jónshúsi í Kaup­manna­höfn.

Eignarhalds­félag Samherja, Esja Shipping Limited, milli­færði í febrúar í fyrra fjármuni inn á reikning félags sem skráð var í Jónshúsi í Kaupmanna­höfn, heimili Jóns Sigurðs­sonar forseta sem er í eigu íslenska ríkisins. Húsið stendur við götuna Øster Voldgade 1.

Milli­færslan inn á danska félagið kemur fram í Samherja­skjölunum sem Stundin fjallar um í samstarfi við Wikileaks, Kveik og Al Jazeera. Kjarninn í þeirri umfjöllun er að Samherji greiddi hundruð milljóna króna í mútur, vel á annan milljarð króna alls, til stjórn­mála- og embættis­manna í Namibíu í skiptum fyrir tryggðan aðgang að hesta­makrílskvóta. 

Samherja­skjölin sýna enn fremur 2.6 milljóna milli­færslu frá þessu sama Kýpur-félagi Samherja í skatta­skjólið Máritíus, 3.6 milljarða króna milli­færslu til Íslands og tæplega 190 milljóna króna milli­færslu frá namibísku félagi Samherja. 

Milli­færslan til Esju ShippingKortið sýnir nokkrar áhuga­verðar milli­færslur til frá reikn­ingi Esju Shipping í DNB bank­anum norska. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli siðferðis­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undrast þögn íslenskra stjórn­valda um þá staðreynd að stærsta spill­ing­armál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir tilstilli íslensks fyrir­tækis. Spyr hvort hundrað milljóna styrkur Orkusjóðs sé ríkis­styrkt spilling og sendir forsætis­ráðherra opið bréf og óskar liðsinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sakaður um stórfelld skatta­laga- og gjaldeyris­brot í Namibíu og fram­salskrafa væntanleg

Ríkis­saksóknari Namibíu er enn ákveðinn í því að óska eftir framsali þriggja stjórn­enda Samherja­félaga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjaldeyris­lögum muni mögulega bætast við sakar­efnin á hendur þeim. Stórfelld skatta­lagabrot Samherja­félaga sögð til rann­sóknar. Samherja­maður segir íslensk yfirvöld þegar hafa neitað að framselja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­ríkis­ráðherra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Samherja­málið við íslenska ráðherra og aðstoðar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér forseta­embættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arftaki formanns flokksins, sitjandi forseta sem hyggst setjast í helgan stein. Flokkurinn nýtur slíks yfirburðar­fylgis að innan­flokks­kosningin er sögð raun­verulegt forseta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­ánsson, uppljóstrari í Samherja­málinu, er sáttur við gang rann­sóknarinnar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagnrýnir þó aðgerðar­leysi yfirvalda við því þegar Samherja­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í viðbrögðum Samherja­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum liðist.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár