Uppáhalds jólabíómyndir Katrínar Jakobsdóttur

Jóla­há­tíðin er sá tími árs þegar flestir fá tæki­færi til að njóta lang­þráðar stundar með fjöl­skyld­unni. Eftir allt hangi­kjötsátið og nammigúffið getur verið gott að koma allri fjöl­skyld­unni fyrir í sóf­anum og setja skemmti­lega fjöl­skyldu­mynd í tækið. Kjarninn hafði sam­band við Katrínu Jak­obs­dóttur, alþing­is­mann og for­mann Vinstri grænna, og bað hana um að velja fimm upp­á­halds jóla­mynd­irnar sínar.

5. Þetta er yndislegt líf (It's a Wonderful Life) - 1946


„Bestu jóla­myndir sög­unnar eru sam­kvæmt flestum gagn­rýnendum frá fimmta ára­tug tutt­ug­ustu aldar og það á við um þessa frægu mynd með James Stewart í aðal­hlut­verki. Kannski er þetta ára­tugur jóla­mynd­anna (Miracle on 34th Street var gerð 1947) áður en kap­ít­al­ism­inn náði tökum á jól­unum, seinni heims­styrj­öldin nýbúin og kalda stríðið enn ekki hafið. Þetta er þéttur pakki af frið og kær­leika.“

4. Die Hard - 1988


„Ég verð að nefna Die Hard (og raunar líka Die Hard II frá 1990), báðar ger­ast um jól og batna þótt ótrú­legt megi virð­ast með árunum. Sú fyrri er sér­stak­lega vel heppnuð og vel skrifuð spennu­mynd. Svo finnst mér alveg óborg­an­legt þegar Bruce Willis sendir fax með fingraförum á flug­vell­inum í númer tvö, það hefur svo ótrú­lega margt breyst!“

3. Fanny og Alexander - 1982


„Fanny og Alex­ander eftir Ingmar Bergman frá 1982 er lík­lega ein fremsta kvik­mynd sein­ustu ára­tuga og ger­ist að hluta á jólum, líka fjöl­skyldu­saga þó að sann­ar­lega sé hún áleitin og erfið á köflum en það skipt­ist líka á skin og skúrir í fjöl­skyldum, stundum líka fyrir jól.“

2. Jólasaga (Un conte de noël) - 2008


„Jólasaga frá 2008 er svört kómedía með jóla­þema og Catherine Deneuve í lyk­il­hlut­verki, ekta fjöl­skyldu­drama til að horfa á fyrir jól (og prísa sig um leið sæla með eigin fjöl­skyldu!).“

1. Jóladraumur Prúðuleikaranna (The Muppet Christmas Carol) - 1992


„Jóla­draumur Prúðu­leik­ar­anna er í miklu dálæti á mínu heim­ili. Jóla­draumur Charles Dickens er jóla­saga með stóru joði og flest gott efni er enn betra með Prúðu­leik­ur­unum! Þessi mynd er óvenju vel heppnuð með mörgum eft­ir­minni­legum tón­list­ar­at­riðum. Við mæðginin heima reynum að horfa á hana fyrir hver jól og ég kemst alltaf í jóla­skap.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár