Vilja að Youtube fjarlægi 20 þúsund lög eða borgi 127 milljarða króna

Full­trúar nokk­urra af stærstu tón­list­ar­manna sög­unnar hafa sett saman hóp sem gengur undir nafn­inu Global Music Rights og krefst þess að Youtube fjar­lægi þús­undir laga sem hefur verið upp­hlaðið á vef­inn þar sem Youtube hafi ekki leyfi til að deila tón­list þeirra. Verði Youtube ekki við beiðn­inni ætlar hóp­ur­inn að krefj­ast 127 millj­arða króna í bætur.

Frá þessu er greint í frétt á vef Time.

https://www.youtube.com/watch?v=y6Sxv-sUYtM

Pharell, The Eagles og John Lennon


Á meðal þeirra sem eru í hópnum eru aðilar sem gæta hags­muna Pharell Williams, The Eagles, Chris Cornell, John Lennon og Smokey Robinson. Það er mat hóps­ins að Youtube skorti leyfi fyrir um 20 þús­und lögum sem hægt er að hlusta á í gegnum vef­inn.

https://www.youtube.com/watch?v=DVg2EJvvlF8

Google, sem á Youtube-vef­inn, hefur hins vegar neitað að verða við kröfum hóps­ins og seg­ist víst vera með réttu leyfin til að spila umrædd lög. Fyr­ir­tækið ætlar því ekki að fjar­lægja tón­list­ina af Youtube. Global Music Rights-hóp­ur­inn hefur svarað til baka og segir að ef tón­listin verði ekki fjar­lægð muni hann stefna Youtube til greiðslu á einum millj­arði dala, um 127 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár