„Stórfurðuleg" skipan Stefáns í nefnd frétt ársins hjá seðlabankavef

Frétt um „stórfurðu­lega“ skipan Stefáns Eiríks­sonar, þáver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í nefnd sem átti að meta hæfni umsækj­enda um stöðu seðla­banka­stjóra, er frétt árs­ins á hinum virta vef Central Banking. Vefurinn birti í gær lista yfir helstu fréttir árs­ins að hans mati.

Fréttin sem um ræðir snérist um skipan hæf­is­nefndar sem sett var á lagg­irnar til að meta hæfi umsækj­enda um stöðu seðla­banka­stjóra.Fyr­ir­sögn hennar var:

„Lög­reglu­stjóri leiðir „stórfurðu­lega" nefnd sem velur næsta seðla­banka­stjóra". Nefndin var skipuð 30. júní síð­ast­lið­inn og var skipan hennar gagn­rýnd mjög, sér­stak­lega að Stefán Eiríks­son, þáver­andi lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, væri gerður að for­manni hennar. Gagn­rýnin snérist að því að Stefán sé ekki hag­fræð­ingur og sé ekki með neina starfs­reynslu úr atvinnu­líf­inu. Einungis einn hag­fræð­ingur sat í þriggja manna nefnd­inni.

[caption id="attachment_15157" align="alignnone" width="419"] Listi Central Banking yfir helstu fréttir árs­ins 2014.[/caption]

Nóbelsverðlaunahafar og seðlabankastjórar


Central Banking fjall­aði um málið í byrjun júlí 2014. Þar var rætt við Guðrúnu Johnsen, lektor við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, og Regínu Bjarna­dóttur, yfir­mann grein­ing­ar­deildar Arion banka, um skipan hæf­is­nefnd­ar­innar. Guðrún sagði hana skaða bæði trú­verð­ug­leika ráðn­ing­ar­ferl­is­ins og vinnu­anda í Seðla­bank­anum. Regína sagði að skipan hæf­is­nefnd­ar­innar væri skað­leg sjálf­stæði Seðla­bank­ans.

[caption id="attachment_2651" align="align­right" width="300"] Stefán Eiríks­son, fyrrum lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.[/caption]

Alls sóttu tíu manns um stöðu seðla­banka­stjóra þegar hún var aug­lýst í byrjun júní. Hæf­is­nefndin, sem Stefán leiddi, komst að þeirri nið­ur­stöðu að þrír umsækj­endur væru mjög vel hæfir til að gegna starf­inu. Þeir væru Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, Friðrik Már Bald­urs­son og Ragnar Árnason. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, end­ur­skip­aði Má svo í starfið til fimm ára þann 15. ágúst.

Central Banking er áskrift­ar­vefur sem fjallar um fjár­mál og efna­hags­mál, með áherslu á seðla­banka, alþjóð­legar fjár­mála­stofn­anir og infastrúktúr fjár­mála­mark­aða og reglu­gerðir. Vefurinn er mjög virtur og mikið les­inn af fag­fólki sem vinnur í þeim geirum sem hann leggur mesta áherslu á að fjalla um. Stjórn­ar­for­maður útgáfu­fé­lags Central Banking er fyrrum rit­stjóri The Banker og í ráð­gjafa­stjórn þess sitja nóbels­verð­launa­hafar í hag­fræði auk fyrrum seðla­banka­stjóra frá Asíu, Evrópu og Amer­íku­álf­unum. Á meðal þeirra er Jean-Claude Trichet, sem var stýrði Seðla­banka Evrópu frá 2003 til 2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár