Búið að semja við viðskiptabankana um Leiðréttinguna

Íslenska ríkið hefur kom­ist að sam­komu­lagi við íslensku við­skipta­bank­ana þrjá um aðferð­ar­fræð­ina sem beita á við útreikn­inga á virði þeirra hús­næð­is­lána sem á að lækka höf­uð­stól­inn á, sam­kvæmt leið­rétt­inga­á­formum rík­is­stjórn­ar­innar. Þetta stað­festir Tryggvi Þór Her­berts­son, verk­efna­stjóri leið­rétt­ing­ar­innar, við Kjarnann og segir að sam­komu­lagið hafi verið gert síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Fyrir lá að sam­komu­lagið þyrfti að nást fyrir lok þessa árs. Það hefur nú tek­ist.

Hvorki á að skapast tap né hagnaður


Nið­ur­fell­ing á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum var eitt helsta stefnu­mál rík­is­stjórn­ar­innar. Hún á að kosta allt að 80 millj­arða króna og í byrjun nóv­em­ber gátu þeir sem sóttu um nið­ur­fell­ingu fengið að vita hvað þeir áttu að fá. Þeir hafa síðan þurft að stað­festa nið­ur­stöð­una.

[caption id="attachment_12426" align="align­right" width="300"] Tryggvi Þór Her­berts­son er verk­efna­stjóri Leið­rétt­ing­ar­innar.[/caption]

Þegar til­kynnt var um hversu mikið hver ætti að fá lá ekki fyrir sam­komu­lag við Arion banka, Íslands­banka og Lands­banka um hvernig verð­tryggð lán í þeirra eigu yrðu nið­ur­færð. Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, fylgd­ist grannt með þeim við­ræðum vegna þess að mjög mis­mun­andi er hvort lán­veit­endur séu að hagn­ast nið­ur­greiðslu rík­is­sjóðs á höf­uð­stóli hús­næð­is­lána. Í lögum um lækkum höf­uð­stóls verð­tryggðra hús­næð­is­lána sem sam­þykkt voru í maí síð­ast­liðnum segir að miða skuli við „að hvorki skap­ist hagn­aður né tap hjá samn­ings­að­ila vegna greiðslu rík­is­sjóðs á leið­rétt­inga­hluta láns“.

Við­ræð­urnar, sem nú er lokið, snér­ust um að við­skipta­bank­arnir fái ekki meira til baka af sumum lánum sínum vegna leið­rétt­ing­ar­innar en þeir gátu vænst ef hún hefði ekki orðið að veru­leika. Þeir eiga ekki að„hagn­ast“ á fram­kvæmd­inni. Sam­komu­lagið á að tryggja að svo sé ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár