The Interview með 9,9 á IMDB og allir hvattir til að gefa henni 10

Kvik­myndin The Interview, sem Sony Pictures kvik­mynda­fram­leið­and­inn ákvað að fresta sýn­ingu á vegna hót­anna tölvu­hakk­ara, er sem stendur með 9,9 í ein­kunn á vefnum Internet Movie Data Base, eða IMDB. Alls hafa á þriðja tug þús­und manns gefið henni 10 í ein­kunn. Samkvæmt því er hún besta kvik­mynd sög­unnar, en myndin hefur, líkt og áður sagði, ekki enn verið sýnd.

Í nóv­em­ber var gerð stór­felld tölvu­árás á kvik­mynda­fram­leið­and­ann Sony Pictures og trún­að­ar­gögnum, tölvu­póst­sam­skiptum, ein­tökum af óút­gefnum bíó­myndum og ýmsu fleira stolið. Hluti þess­arra gagna hefur síðan lekið út og ollið miklu fjaðrafoki.

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI seg­ist hafa fengið það stað­fest að Norður-Kórea standi að baki tölvu­árásinni og að ástæðan sé umrædd kvik­mynd, The Interview, sem gjallar um banda­ríska blaða­menn sem eiga að myrða leið­toga Norður-Kóreu fyrir banda­rísku leyni­þjón­ust­una CIA.

Eftir að hót­anir bár­ust um að hryðju­verk yrðu framin ef myndin yrði sýnd ákvað Sony Pictures að hætta við sýn­ingu hennar, en til stóð að frum­sýna hana á jóla­dag.

Ákvörðun Sony Pictures hefur verið harð­lega gagn­rýnt, meðal ann­ars af Barack Obama, for­seta Banda­ríkj­anna, sem segir málið sé allt hið alvar­leg­asta.

Í lok síð­ustu viku setti not­andi IMBD gagn­rýni á mynd­ina inn á síð­una, hraun­aði yfir Sony fyrir ákvörðun sína, gaf mynd­inni fullt hús og hvatti alla aðra til að gera slíkt hið sama. „Sem banda­rískir borg­arar þá höfum við algjöran rétt til að sjá þessa mynd, Sony þarf að láta sér vaxa hreðjar og sýna almenn­ingi mynd­ina. FÁIÐ ALLA SEM ÞIÐ GETIÐ TIL AÐ GEFA ÞESSARI MYND 10 Á ÞESSARI SÍÐU!!! OG HEIMTIÐ AÐ BIÐ FÁUM AÐ SJÁ HANA!!!“, segir not­and­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár