Xiaomi verðmetið á 5.400 milljarða króna

Kín­verski snjall­síma­fram­leið­and­inn Xiaomi er í fjár­mögn­un­ar­hug­leið­ingum og safnar nú nýju hlutafé upp á einn millj­arð Banda­ríkja­dala, um 120 millj­arða íslenskra króna, þar sem ráð er fyrir því gert að heild­ar­virði félags­ins sé 45 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 5.400 millj­örðum íslenskra króna. Fyrir sextán mán­uðum síðan var fyr­ir­tækið metið á tíu millj­arða Banda­ríkja­dala, eða um 1.200 millj­arða króna. Verðmæti félags­ins hefur því rúm­lega fjór­fald­ast á skömmum tíma.

Xiaomi er svo til óþekkt utan Kína, en hlut­deild þess á heims­mark­aði er þó gríð­ar­lega mikil. Dótt­ur­fé­lög þessa snjall­símarisa koma meðal ann­ars að því að fram­leiða ýmsa hluta sem nýttir eru í iPhone síma Apple og einnig síma frá Samsung. Þá eru símar frá fyr­ir­tæk­inu vin­sælir í Kína og öðrum Asíu-ríkjum.

Í umfjöllun Wall Street Journal segir að ef fyr­ir­tæk­inu tekst að afla þess fjár sem að er stefnt, þá muni það verða eitt verð­mætasta nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki á sviði tækni á heims­vísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár