Instagram 35faldast í verði, besta fjárfesting Zuckerberg frá upphafi

Mark­aðsvirði sam­fé­lags­mið­ils­ins Instagram er 35 millj­arðar dala, rúm­lega 4.400 millj­arðar íslenskra króna. Þetta hefur Business Insider eftir grein­anda Citi bank­ans, Mark May. Til að setja þessa tölu í sam­hengi þá var verg þjóð­ar­fram­leiðsla á Íslandi í fyrra 1.873 millj­arðar króna, eða rúm­lega 40 pró­sent af mark­aðsvirði Instagram.

Það virð­ist því vera að Mark Zuckerberg, for­stjóri og stofn­andi Facebook, hafi veðjað á réttan hest þegar hann greiddi einn millj­arð dala fyrir Instagram í apríl 2012. Hann hefur nefni­lega 35faldað þá fjár­fest­ingu miðað við mat Citi. Gangi spár um tekjur Instagram á næsta ári eftir er ljóst að kaupin á Instagram munu verða ein þau bestu í við­skipta­sög­unni.

Auglýsingatekjur farnar að streyma inn


Kaup Facebook á Instagram voru gagn­rýnd víða á sínum tíma, enda tekjur Instagram engar á þeim tíma sem kaupin áttu sér stað. Margir virt­ust eiga í vand­ræðum með að sjá hvernig þessi mynda­sam­fé­lags­mið­ill ætl­aði sér að ná í tekjur. En Zuckerberg sá mikil tæki­færi í Instagram.

Í síð­ustu viku var til­kynnt að Instagram væri komin með fleiri not­endur en Twitter, en þeir eru yfir 300 millj­ónir. Notendur Instagram eru líka 1,8 sinnum virk­ari en not­endur Twitter.Og í þessum gríð­ar­lega fjölda not­enda, sem er auk þess mjög virkur á miðl­inum, telur Facebook að liggi tæki­færi til að græða ótrú­legt magn af pen­ingum.

Í dag græðir Facebook lítið á Instagram. Aug­lýs­inga­sala á miðl­inum hófst enda ekki fyrr en á síð­ari hluta árs 2013 í Banda­ríkj­unum. Instagram tókst sam­stundis að laða að sér mjög verð­mæta aug­lýsendur á borð við Adidas, Ben & Jerry´s, Burberry, General Electric, Levi´s, Lexus, Macy´s, Michael Kors, PayPal og Starwood. Instagram hleypti síðan aug­lýsendum utan Banda­ríkj­anna að í ár.

May býst við því að árið 2015 verði árið sem Instagram, og raunar aðrar fjár­fest­ingar Facebook sem ekki tengj­ast grunn­rekstri fyr­ir­tæk­is­ins beint, muni fara að hala inn fé. Miðað við þann vöxt sem orðið hefur í aug­lýs­inga­sölu hjá Instagram býst hann við að tekjur fyr­ir­tæk­is­ins gætu orðið um 2,7 millj­arðar dala, um 340 millj­arðar króna, á árinu 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár