Sainsbury´s jarðaði John Lewis í keppninni um bestu jólaauglýsinguna

Árum saman hefur breska versl­un­ar­keðjan John Lewis nálg­ast jóla­mark­aðs­setn­ingu sína með því að búa til sæta en eft­ir­minni­lega sjón­varps­aug­lýs­inga­sögu um ein­hvern sem gerir eitt­hvað til að gera jólin betri fyrir ein­hvern annan. Þessi leið hefur gef­ist vel fyrir John Lewis og ár hvert er aug­lýs­ingar keðj­unnar beðið með eft­ir­vænt­ingu og mikið gert úr henni í breskum fjöl­miðlum. Jóla­sögu­þemað hefur líka smit­ast yfir til ann­arra landa, meðal ann­ars Íslands, eins og má til dæmis sjá í jóla­aug­lýs­ingu Icelandair þetta árið.

https://www.youtube.com/watch?v=iccscUFY860

Í ár fékk John Lewis hins vegar sam­keppni. Stór­mark­aðskeðjan Sains­bury´s var orðin leið á því að athyglin fyrir bestu jóla­aug­lýs­ing­una félli alltaf á sama stað og ákvað að ráð­ast í hug­mynd sem daðrar við að vera aug­lýs­inga­legt stór­virki.

Aug­lýs­ingin setur á svið aðfanga­dags­kvöld árið 1914, þegar fyrri heim­styrj­öldin var nýhafin. Hún sýnir breska og þýska her­menn, sem börð­ust hat­ramm­lega gegn hvorum öðrum í stríð­inu, fagna jól­unum stutt­lega saman líkt og ekk­ert stríð hafi geisað. Í aðal­hlut­verki er síðan súkkulaði­stykki, og auð­vitað var hægt að kaupa slíkt súkkulaði­stykki í versl­unum Sains­bury´s fyrir jólin.

https://www.youtube.com/watch?v=NWF2JBb1bvM

Aug­lýs­ingin var gerð í sam­starfi við góð­gerð­ar­sam­tökin Royal British Legion, sem veita fyrrum her­mönnum í breska hernum og fjöl­skyldum þeirra stuðn­ing, og rennur allur sölu­á­góði af súkkulað­inu góða, sem kostar eitt pund, til sam­tak­anna. Breskir fjöl­miðlar hafa hampað Sains­bury´s fyrir aug­lýs­ing­una frá­bæru og lýst keðj­una sem sig­ur­veg­ara í jóla­aug­lýs­inga­keppn­inni 2014.

[caption id="attachment_15049" align="align­right" width="300"] Súkkulaðið góða sem fæst í Sains­bury´s.[/caption]

Sains­bury´s skák­aði því John Lewis, all rosa­lega þetta árið og það verður áhuga­vert að sjá hvernig síð­ar­nefnda fyr­ir­tækið bregst við að ári.

Báðar aug­lýs­ing­arnar hafa gengið afar vel í netheimum og þar hefur John Lewis, enn sem komið er, vinn­ingin ef stuðst er við áhorfs­tölur. Alls hafa rúm­lega 21 milljón manns horft á mör­gæs­ina Monty og vin hans á meðan að her­menn­irnir hressu og súkkulaði­stykkið þeirra er með 15,6 milljón áhorf á Youtube.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár