BlackBerry vonast til að ná vopnum sínum aftur með nýjum síma

BlackBerry síma­fram­leið­and­inn hefur átt erfitt upp­dráttar und­an­farin ár og hefur fyr­ir­tæk­inu marg­sinnis verið spáð gjald­þroti, þar sem því tókst ekki að þróa vöru sem var sam­keppn­is­hæf við snjall­sím­ana, einkum frá Apple og Samsung.

Nú segir for­stjóri BlackBerry, John Chen, að BlackBerry ætli sér stóra hluti og aukna mark­aðs­hlut­deild með nýjum síma, BlackBerry Classic, en hann lík­ist síma fyr­ir­tæk­is­ins sem var eitt mesta tákn vel­gengni á heims­vísu á árum áður, ekki síst árið 2007.

Í umfjöllun The Verge um BlackBerry Classic segir að sím­inn eigi að vera góður í notkun í annarri hendi, og kosta 450 Banda­ríkja­dali, eða sem nemur um 60 þús­und íslenskum krónum.

BlackBerry tap­aði 5,9 millj­örðum Banda­ríkja­dala á árinu 2013, eða sem nemur ríf­lega 700 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár