Norðmenn enn hræddir - valdatafl Sádí-Araba?

Óvissa er það sem helst kemur upp í hug­ann þegar Norðmenn hugsa til kom­andi árs í efna­hags­legu til­liti og árétt­aði Erna Solberg, for­sæt­is­ráð­herra Noregs, þessa sýn á blaða­manna­fundi síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. „Það er mikil óvissa framundan og við þurfum að taka afleið­ing­unum af því,“ sagði Solberg og árétt­aði að erf­iðir tímar gætu verið framundan hjá fólki og fyr­ir­tækjum í byrjun árs 2015.

Vandamál í Noregi tengj­ast mörgum Íslend­ingum sem búa þar en þeim hefur fjölgað hratt á und­an­förnum árum. Samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands búa nú um 8.700 Íslend­ingar í Noregi en þeir voru 3.800 árið 2008.

Úr 22 krónum í 17


Eftir að norska krónan féll um átta pró­sent á einum degi, síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, hefur hún lít­il­lega styrkst. Hræðsla hefur þó verið sýni­leg á mörk­uðum, að því er segir í umfjöllun Dagens Nær­ingsliv. Gengi krón­unnar núna er um níu krónur fyrir hverja evru, eða sem nemur því að um sautján íslenskar krónur jafn­gildi einni norskri krónu. Stutt er síðan þessi tala var í tæp­lega 22 krónum.

Norðmenn búa þó við sterka inn­viði og hafa hinn risa­vaxna olíu­sjóð að mestu (95%) í ávöxtun í eignum utan Noregs sem bundnar eru í erlendum myntum. Fall krón­unnar heima fyrir hefur því ekki svo miklar afleið­ingar fyrir þann sjóð. Hins vegar getur það haft alvar­legar afleið­ingar fyrir norska hag­kerfið ef verð­fallið á olíu heldur áfram, en blikur eru á lofti í þeim efnum.

Valdatafl?


Anatole Kaletsky, gam­al­reyndur hag­fræð­ingur og pistla­höf­undur The Economist, segir í pistli sem hann birti á vef Reuters í gær að Sádí-Arabía sé mik­ill áhrifa­valdur bak við tjöldin og að ekki sé úti­lokað að hin mikla lækkun á olíu að und­an­förnu, sem flestir grein­endur á mark­aði spáðu ekki fyrir um, teng­ist valda­tafli OPEC ríkj­anna þar sem Rússar hafa nú verið færðir skör neðar. Í grein­ingu sinni segir hann að olían geti vel lækkað enn meira, jafn­vel niður í 20 Banda­ríkja­dali á fatið, en verðið nú er tæp­lega 60 dalir og hefur það lækkað um tæp­lega 50 pró­sent frá því í júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár