Breskur ráðherra þrýsti á íslenska ráðherra að hraða Icesave-greiðslum

Andrea Leadsom, und­ir­ráð­herra fyrir efna­hags­mál í breska fjár­mála­ráðu­neyt­inu, seg­ist hafa þrýst á íslenska ráð­herra að hraða end­ur­greiðslu á fé breskra skatt­greið­enda sem þeir áttu inni hjá þrota­búi gamla Lands­bank­ans. Hún stað­festi í gær að bresk stjórn­völd hefðu fengið rúm­lega 257 millj­arða króna greidda úr þrota­bú­inu, en krafa þeirra er til­komin vegna greiðslu þeirra á inn­stæðu­trygg­ingu til þeirra Breta sem áttu fé á Icesave-reikn­ingum Lands­bank­ans fyrir hrun.

Þrotabú gamla Lands­bank­ans fékk und­an­þágu frá Seðla­banka Íslands í byrjun des­em­ber til að greiða út um 400 millj­arða króna for­gangs­kröfur út úr búinu. Þær greiðslur voru fram­kvæmdar í vik­unni og þorri þeirra rann til breska rík­is­ins. Það hefur nú fengið um 85 pró­sent af kröfum sínum í þrotabú Lands­bank­ans greiddar. Búið telur sig eiga um 218 millj­arða króna umfram for­gangs­kröfur og því ljóst að allar Icesave-kröfur í bú þess ættu að greið­ast.

Þrýsti á ráðherra að hraða endurgreiðslum


Greint er frá end­ur­greiðsl­unni á vef breska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Þar er haft eftir Leadsom að hún hafi „þrýst á ráð­herra á Íslandi að hraða end­ur­greiðslum á fé í eigu breskra skatt­greið­enda. Þess vegna er það mjög ánægju­legt að við höfum tekið við frek­ari, og umtals­verðri, greiðslu frá þrota­búi Lands­bank­ans, sem starf­rækti Icesave í Bret­landi. Þessi greiðsla þýðir að við höfum nú fengið 85 pró­sent af heild­ar­kröfum okkar vegna falls Icesave“.

[caption id="attachment_14942" align="align­right" width="150"] Andrea Leadsom.[/caption]

Leadsom sagði enn­fremur: „Fall íslenskra banka kost­aði skatt­greið­endur millj­arða punda, án þess að nokkur vissa væri fyrir því að fá þá pen­inga til baka. Við erum áfram ákveðin í að ná allri þeirri útistand­andi upp­hæð sem er í eigu breskra skatt­greið­enda til baka frá þrota­búi Lands­bank­ans, og munum halda áfram að vinna að því að láta það verða að veru­leika sem allra fyrst.“

Hollendingar seldu kröfu til vogunarsjóða


Icesave-reikn­ingar Lands­bank­ans voru líka starf­ræktir í Hollandi og því var hol­lenski seðla­bank­inn líka stór kröfu­hafi í þrotabú Lands­bank­ans, enda greiddi hann líka út inn­stæðu­trygg­ingu til hol­lenskra við­skipta­vina Icesave. Hol­lenski Seðla­bank­inn til­kynnti hins vegar í ágúst að hann hefði selt eft­ir­stöðvar kröfu sinnar áfram til þýska bankaris­ans Deutsche Bank.

Kjarninn greindi svo frá því að Deutche Bank hefði selt kröf­una áfram, aðal­lega til hóps vog­un­ar­sjóða sem eiga mikið af kröfum á fallna íslenska banka. Á meðal þeirra er Burlington Loan Mana­gement, stærsti ein­staki kröfu­hafi Ísland. Sjóð­ur­inn er í stýr­ingu Davidson Kempner, eins stærsta vog­un­ar­sjóðs í heimi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár