80 prósent ungs fólks óánægð með Sigmund Davíð og Hönnu Birnu

Alls er 80 pró­sent fólks á aldr­inum 18-29 ára óánægð með Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra. Hann nær þó ekki að vera óvin­sæl­asti ráð­herr­ann hjá þessum hópi því 82 pró­sent hans er óánægður með Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, fyrrum inn­an­rík­is­ráð­herra. Þetta kemur fram í nýjum þjóð­ar­púlsi Capacent sem birt­ust var í morgun.

Þegar allir ald­urs­hópar eru skoð­aðir er mest ánægja með störf Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra (30 pró­sent), Eyglóar Harð­ar­dóttur félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra (26 pró­sent) og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra (25 pró­sent). Mest óánægja mæld­ist með störf Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur (67 pró­sent), Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra (63 pró­sent), og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar (62 pró­sent).

Eldri karlmenn frá landsbyggðinni með háar tekjur


Capacent birtir afstöðu þeirra sem tóku þátt í könn­un­inni eftir aldri gagn­vart sumum ráð­herr­anna. Ungt fólk er almennt óánægð­ara með ráð­herr­anna en eldra fólk. Þeir sem eru óvin­sæl­astir hjá hópnum 18-29 ára eru Hanna Birna (82 pró­sent óánægð með hana) og Sig­mundur Davíð (80 pró­sent óánægð með hann). Mest ánægja er hjá ungu fólki með störf Bjarna Bene­dikts­sonar, en samt eru ein­ungis 17 pró­sent 18-29 ára ánægð með störf hans og 68 pró­sent óánægð. Alls eru 15 pró­sent ánægð með Eygló Harð­ar­dóttur en 47 pró­sent óánægð með hana.

Sam­an­dregið þá er meiri ánægja og minni óánægja með störf ráð­herra rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks hjá körlum frekar en konum, fólk á lands­byggð­inni er ánægð­ara en fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og tekju­hærri eru ánægð­ari en tekju­lægri. Athygli vekur að þegar könnuð er afstaða fólks eftir menntun er lang minnst ánægja og mest óánægja með störf ráð­herr­anna hjá fólki með háskóla­próf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár