AGS vill að Íbúðalánasjóður verði leystur upp

Sendi­nefnd Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) á Íslandi vill að stjórn­völd hugi að því að leysa upp Íbúða­lána­sjóð með skipu­legum hætti til að lág­marka kostnað rík­is­ins og þá kerf­is­á­hættu sem hlýst af sjóðnum. Í áliti nefnd­ar­innar sem birt var í dag segir að „jafn­framt ætti að leita sam­stöðu um helstu félags­leg mark­mið íbúða­lána áður en arf­taka stofn­un­ar­innar verður komið á fót“.

Vandi Íbúða­lána­sjóðs er mik­ill og skatt­greið­endur hafa þurft að greiða um 50 millj­arða króna með sjóðnum á und­an­förnum árum. Áhugi hefur verið hjá við­skipta­bönkum, sér­stak­lega Arion banka, á því að kaupa lána­safn Íbúða­lána­sjóðs. Eygló Harð­ar­dóttir, félags og hús­næð­is­mála­ráð­herra, sagði hins vegar í fréttum Stöðvar 2 í síð­ustu viku að ekki kæmi til greina að selja lána­safnið á meðan að rikis­á­byrgð væri á skuldum sjóðs­ins.

AGS greinir íslenskt efnahagslíf


Sendi­nefnd AGS á Íslandi kynnti álit sitt á stöðu efna­hags­mála hér­lendis á Kjar­vals­stöðum í morgun. Nefndin hefur verið á Íslandi und­an­farna daga við að vinna að álits­gerð­inni.

Helstu nið­ur­stöður hennar eru að við­fangs­efni Íslands á sviði hag­stjórnar þarf að vera að styrkja fjár­hags­leg tengsl lands­ins við umheim­inn. Þrátt fyrir jákvæðar horfur í efna­hags­málum, sér­stak­lega vegna mik­illar einka­neysla vegna skulda­leið­rétt­ingar og lægra inn­flutn­ings­verðs, eru sýni­legir veik­leikar enn fyrir hendi í íslenskum efna­hags­málum. Þeir eru helst óvissa vegna losun hafta, mik­ill þrýst­ingur á launa­hækk­anir í kom­andi kjara­við­ræðum, laga­leg við­fangs­efni vegna skatta á fjár­mála­fyr­ir­tæki og fram­kvæmd verð­trygg­ingar og, líkt og sagði hér að ofan, veik staða Íbúða­lána­sjóðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár