AGS: Ísland gengur ágætlega en styrkja þarf tengsl við umheiminn

Helsta við­fangs­efni Íslands á sviði hag­stjórnar þarf að vera að styrkja fjár­hags­leg tengsl lands­ins við umheim­inn. Þrátt fyrir jákvæðar horfur í efna­hags­málum, sér­stak­lega vegna mik­illar einka­neysla vegna skulda­leið­rétt­ingar og lægra inn­flutn­ings­verðs, eru sýni­legir veik­leikar enn fyrir hendi í íslenskum efna­hags­málum. Þeir eru helst óvissa vegna losun hafta, mik­ill þrýst­ingur á launa­hækk­anir í kom­andi kjara­við­ræðum, laga­leg við­fangs­efni vegna skatta á fjár­mála­fyr­ir­tæki og fram­kvæmd verð­trygg­ingar og veik staða Íbúða­lána­sjóðs.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í áliti sendi­nefndar Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) eftir úttekt hennar á efna­hags­málum Íslands.

Sendi­nefndin kynnti álitið á Kjar­vals­stöðum klukkan 10 í dag.

Fyrr í dag greindi Seðla­bank­inn frá því að hann hefði ákveðið að greiða fyr­ir­fram hluta lána frá AGS sem fengin voru í tengslum við efna­hags­á­ætlun stjórn­valda en sú áætlun var studd af AGS. Að greiðsl­unni lok­inni hafa stjórn­völd end­ur­greitt 83 pró­sent af lán­inu frá AGS. Um er að ræða end­ur­greiðslur að jafn­virði um 50 ma.kr. (275 millj­ónir SDR) sem voru upp­haf­lega á gjald­daga á árinu 2015. Heild­ar­fjár­hæð láns­ins frá AGS nam um 253 ma.kr. (1.400 millj­ónum SDR). Eft­ir­stöðvar láns­ins eftir þessa fyr­ir­fram­greiðslu eru um 43 ma.kr. (237 millj­ónir SDR).

Samandregið álit sendinefndar AGS eftir úttekt á efnahagsmálum Íslands:


Helsta við­fangs­efnið á sviði hag­stjórnar er að styrkja fjár­hags­leg tengsl Íslands við umheim­inn. Árangur á þessu sviði er for­senda fyrir hag­vexti og hag­kvæm­ari fjár­fest­ing­ar­kostum fyrir heim­ili og fyr­ir­tæki lands­ins. Það er skyn­sam­legt að taka var­færin skref til los­unar fjár­magns­hafta í ljósi ástands heims­bú­skap­ar­ins jafn­hliða áfram­hald­andi stefnu­festu og styrk­ingu inn­viða, en þar með tal­inn er sjálf­stæður seðla­banki, hald­góðar rík­is­fjár­mála­reglur og traustar var­úð­ar­reglur og var­úð­ar­ráð­staf­anir.

Jákvæðar horfur í efna­hags­málum ættu að styðja við áætlun um losun fjár­magns­hafta. Dregið hefur úr hag­vexti á árinu, en inn­lend eft­ir­spurn er kröftug. Ef litið er fram á veg­inn er útlit fyrir að einka­neysla muni styrkj­ast vegna skulda­leið­rétt­ingar og lægra inn­flutn­ings­verðs. Fjár­fest­ingar einka­geirans ættu að ná sér aftur á strik eftir fjár­mála­á­fallið.

Veik­leikar eru enn fyrir hendi. Eftirmál fjár­mála­á­falls­ins eru enn nokkur og hefur það áhrif á hag­vöxt og dregur úr ytri stöð­ug­leika. Af inn­lendum áhættu­þáttum ber meðal ann­ars að nefna óvissu vegna los­unar fjár­magns­hafta, tölu­verðan þrýst­ing á launa­hækk­anir í kom­andi kjara­við­ræðum, laga­leg við­fangs­efni vegna skatta á fjár­mála­fyr­ir­tæki og fram­kvæmd verð­trygg­ingar og veika stöðu Íbúða­lána­sjóðs. Óvissa ríkir um ytri skil­yrði, meðal ann­ars vegna áhættu sem tengd er minni eft­ir­spurn í helstu við­skipta­löndum og verð­hjöðn­un­ar­á­hrifa.

End­ur­nýjað átak í áætlun til los­unar fjár­magns­hafta

Sendi­nefndin fagnar því átaki sem gert hefur verið til und­ir­bún­ings áætl­unar um losun fjár­magns­hafta. Árang­ur­inn kemur fram í sam­komu­lagi við LBI og bættum skiln­ingi á þeim vanda sem tengdur er við­fangs­efn­inu. Leiðin sem valin verður í nýrri áætlun um losun fjár­magns­hafta mun móta Ísland til fram­tíðar. Til að tryggja jákvæð áhrif til langs tíma á hag­kerfið þarf áætl­unin að: (i) leggja áherslu á stöð­ug­leika, (ii) vera víð­tæk og tengd aðstæðum, (iii) grund­vall­ast á trú­verð­ugri grein­ingu, og (iv) leggja áherslu á sam­vinnu og hvatn­ingu til þátt­töku til að draga úr áhættu.

Áhersla á auk­inn við­skipta­jöfnuð styður við losun fjár­magns­hafta. Eftir hrun fjár­mála­geirans batn­aði við­skipta­jöfn­uður veru­lega í kjöl­far geng­is­falls, sem hefur stutt við útflutn­ing og ferða­þjón­ustu. Þessa bættu sam­keppn­is­stöðu þarf að styrkja enn frekar með stefnu sem hlúir að fjár­fest­ingu og sparn­aði – þar með talið fjár­fest­ingu í innviðum – með áherslu á að haldið verði aftur af launa­hækk­unum umfram fram­leiðni­aukn­ingu.

Pen­inga­stefnan – áskor­anir framundan

Pen­inga­stefnan er í sam­ræmi við verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans. Nýleg vaxta­lækkun er talin hæfi­leg í ljósi þess að raun­vextir hafa hækkað sakir minnk­andi verð­bólgu og lækk­andi verð­bólgu­vænt­inga ásamt nokkuð hæg­ari hag­vexti. Fram­vegis við vaxta­á­kvarð­anir ætti að vega að kost­gæfni þrýst­ing vegna launa­hækk­ana og minni slaka í hag­kerf­inu á móti verð­hjöðn­un­ar­á­hrifum frá útlöndum. Kaup Seðla­bank­ans á gjald­eyri á mark­aði til að byggja upp gjald­eyr­is­forða ættu að halda áfram eftir því sem aðstæður leyfa áður en fjár­magns­höftum er létt.

Nauð­syn­legt er að við­halda sjálf­stæði og trú­verð­ug­leika Seðla­bank­ans. Við end­ur­skoðun laga um bank­ann ætti að styðj­ast við helstu end­ur­bætur á stjórn­skipan hans frá 2009 svo sem umgjörð um pen­inga­stefnu­nefnd, gagn­sæi og trú­verð­ug­leika ákvarð­ana­töku. Trú­verð­ugur, sjálf­stæður og vel fjár­magn­aður seðla­banki eykur mátt pen­inga­stefnu sem eflir efna­hags­legan stöð­ug­leika og vöxt og styður við losun fjár­magns­hafta.

Opinber fjár­mál – frá aðhaldi til hag­vaxtar

Fjárlög árs­ins 2015 eru í sam­ræmi við mark­mið um lækkun skulda en áhætta er enn til staðar. Fjárlög miða að afgangi hins opin­bera sem svarar til 0,2% af VLF. Þetta er í sam­ræmi við mark­mið um jöfnuð í opin­berum fjár­málum. Þessi nið­ur­staða end­ur­speglar inn­flæði stakrar greiðslu frá fjár­mála­geir­anum sem færir afgang árs­ins 2014 að 2% af VLF. Til­greina ætti mögu­legar við­bót­ar­að­gerðir í opin­berum fjár­málum til að mæta áhættu. Möguleg áhætta felst í hugs­an­legum lög­sóknum vegna skatta á banka og auknu tapi Íbúða­lána­sjóðs, en auk þess gera fjár­lög ráð fyrir hóf­legum launa­hækk­unum og öðrum útgjöldum sem gætu raun­gerst með öðrum hætti í vænt­an­legum kjara­samn­ingum. Áfram­hald­andi agi í rík­is­fjár­málum til með­al­langs tíma ásamt kröft­ugum hag­vexti mun bæta á vara­sjóði, auka traust og stuðla að lægri vöxtum. Samþykki á frum­varpi til laga um opin­ber fjár­mál (e. Organic budget law) myndi stuðla að mik­il­vægri styrk­ingu á umgjörð opin­berra fjár­mála og hæfni til að upp­fylla við­mið sem aftur eykur traust erlendra fjár­festa.

Eftir að tíma­bili aðhalds og aðlög­unar í opin­berum fjár­málum er að mestu lokið þarf stefnu í opin­berum fjár­málum sem styður við hag­vöxt. Gera þarf meira til að skapa svig­rúm fyrir opin­bera fjár­fest­ingu svo sem í vega­kerfi og heil­brigð­is­málum, jafn­framt því að færa skatt­byrði frá beinum sköttum yfir í óbeina skatta. Greina þarf vel áhrif á tekju­dreif­ingu.

Stjórn­völd hafa hafið mik­il­vægar end­ur­bætur á virð­is­auka­skatt­kerf­inu. Hærra þrepið er með því hæsta og lægsta þrepið meðal þess lægsta sem ger­ist í OECD- ríkj­unum. Margs­konar und­an­þágur veikja hins vegar skil­virkni kerf­is­ins sem tæki til tekju­öfl­unar. Til­lög­urnar um end­ur­bætur hafa ein­hver áhrif á tekju­dreif­ingu en aðrar ráð­staf­anir í rík­is­fjár­málum sem eru mark­viss­ari til jöfn­unar ætti að nota sam­hliða. Til með­al­langs tíma ætti að end­ur­bæta virð­is­auka­skatt­kerfið til að eyða veik­leikum í upp­bygg­ingu þess.

Stefna varð­andi fjár­mála­geir­ann – styrk­ing við­náms­þróttar

Bank­arnir standa styrkir en mik­il­vægt er að við­halda hárri eigin- og lausa­fjár­stöðu til að mæta losun fjár­magns­hafta jafn­framt því að mæta auk­inni áhættu. Óvissa tengd arf­leifð fjár­mála­á­falls­ins og laga­á­hættu, þar á meðal kæru­málum vegna verð­trygg­ingar, kalla á skyn­sam­lega ráð­stöfun hagn­aðar og aukna lang­tíma­fjár­mögnun hjá fjár­mála­stofn­unum. Sendi­nefndin hvetur Seðla­bank­ann og Fjár­mála­eft­ir­litið til að halda áfram að þróa álags­próf sem byggj­ast á efna­hags­legum og fjár­mála­legum grunni.

Góður árangur hefur náðst í end­ur­bótum á umgjörð fjár­mála­stöð­ug­leika. Seðla­bank­inn hefur styrkt reglu­verk um lausa­fjár­stöðu í erlendum gjald­miðlum með því að inn­leiða reglur um stöðugt fjár­mögn­un­ar­hlut­fall sem byggir á Basel-III regl­unum. Laga­breyt­ingar hafa tekið gildi sem efla eft­ir­lit með tengdum aðilum og unnið er að frek­ari end­ur­bótum á áhættu­grein­ing­ar­kerfi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Nýstofnað fjár­mála­stöð­ug­leika­ráð hefur leitt umræðu um eig­in­fjár­auka. Frekari vinnu er þörf til að þróa tæki til að mæta kerfis – og hag­sveiflu­á­hættu.

Frekari styrk­ing örygg­is­nets og eft­ir­lits ásamt því að taka á vanda Íbúða­lána­sjóðs eru for­gangs­at­riði.

Mik­il­vægt er að stjórn­völd vinni áfram að áætl­unum um að færa inn­stæðu­trygg­ingar og upp­gjör vegna slita á bönkum til sam­ræmis við end­ur­bætta alþjóð­lega staðla. Koma ætti á skýru og gagn­sæju kerfi vegna lausa­fjár­að­stoðar auk þess sem end­ur­bæta mætti sam­vinnu stofn­ana um við­brögð við kreppu. Stjórn­völd þurfa að huga að því að leysa upp Íbúða­lána­sjóð með skipu­legum hætti til að lág­marka kostnað rík­is­ins og kerf­is­á­hættu. Jafn­framt ætti að leita sam­stöðu um helstu félags­leg mark­mið íbúða­lána áður en arf­taka stofn­un­ar­innar verður komið á fót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár