Seðlabankinn fyrirframgreiðir 50 milljarða inn á AGS-lán

Seðla­banki Íslands hefur ákveðið að fyr­ir­fram­greiða allt að 50 millj­arða króna af lánum sem hann fékk hjá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum (AGS) í tengslum við efna­hags­á­ætlun stjí­orn­valda. Stjórn­völd hafa nú end­ur­greitt 83 pró­sent af lán­inu. Lánin sem greidd voru upp­haf­lega á gjald­daga á árinu 2015. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­anum sem birt­ist á vef hans í morgun.

Alls fengu íslensk stjórn­völd 253 millj­arða að láni frá AGS í tengslum við áætl­un­ina. Eftir fyr­ir­fram­greiðsl­una sem til­kynnt var um í morgun eru eft­ir­stöðvar láns­ins um 43 millj­arðar króna.

Í til­kynn­ingu Seðla­bank­ans segir: „Ákvörð­unin um fyr­ir­fram­greiðslu er tekin í tengslum við skulda­stýr­ingu sem miðar að því að greiða niður lán til skemmri tíma. Við ákvörð­un­ina er tekið mið af til­tölu­lega rúmri lausa­fjár­stöðu Seðla­banka Íslands, meðal ann­ars vegna inn­gripa á inn­lendum gjald­eyr­is­mark­aði. End­ur­greiðslan hefur áhrif á skuldir Seðla­banka Íslands en ekki á skuldir rík­is­sjóðs vegna þess að AGS-lánið var tekið af Seðla­bank­anum. Gjald­eyr­is­forði Seðla­bank­ans dregst saman sem nemur þess­ari fjár­hæð. Stærð forð­ans í lok nóv­em­ber nam um 566 ma.kr.“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár