Fjölmiðlanefnd snýst hugur, óskar eftir upplýsingum um eigendur 365

Fjöl­miðla­nefnd óskaði í gær eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eign­ar­hald fram­taks­sjóðs sem á 18,6 pró­sent hlut í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu 365 miðla. Kjarninn greindi frá því á þriðju­dag að fjöl­miðla­nefnd hefði tekið ákvörðun um að fara ekki fram á frek­ari upp­lýs­ingar frá 365 um eign­ar­hald sjóðs­ins. Nú hefur þeirri ákvörðun verið snúið.

Elva Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefndar, segir að hún hafi í gær óskað eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eign­ar­hald fram­taks­sjóðs­ins, sem heitir Auður 1 og er í stýr­ingu hjá fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Virðingu. Erindi þess efnis var sent til Sævars Freys Þrá­ins­sonar, for­stjóra 365 miðla, og Einars Þórs Sverr­is­sonar, lög­manns og stjórn­ar­manns 365 miðla, og fengu þeir frest til 5. jan­úar til að svara erind­inu. „Það þýðir að nefndin óskar eftir upp­lýs­ingum um hverjir eig­endur eru og hversu stóran hlut þeir eiga í fram­taks­sjóðnum,“ segir Elva.

Eigendur sjóðsins sagðir ekki skipta máli


Síð­ast­lið­inn föstu­dag var send út til­kynn­ing um að 365 miðlar, langstærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, og Tal hafi sam­ein­ast undir merkjum 365 eftir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykkti sam­runa félag­anna, með skil­yrðum. Við það eign­uð­ust fyrrum hlut­hafar Tals 19,8 pró­sent hlut í sam­ein­uðu félagi, sem mun bera nafn 365 miðla. Stærsti eig­andi Tals er Auður 1, sjóður í stýr­ingu hjá Virðingu, en hann á 18,6 pró­sent beinan hlut í 365 miðlum eftir að sam­run­inn gekk í gegn. Líkt og tíðkast með fram­taks- og fjár­fest­inga­sjóði er eign­ar­hald hans ekki opin­bert.

[quote font="0" align="right"]Stærsti eig­andi Tals er Auður 1, sjóður í stýr­ingu hjá Virðingu, en hann á 18,6 pró­sent beinan hlut í 365 miðlum eftir að sam­run­inn gekk í gegn. Líkt og tíðkast með fram­taks- og fjár­fest­inga­sjóði er eign­ar­hald hans ekki opin­bert.[/quote]

Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum frá fjöl­miðla­nefnd á þriðju­dag um hvort kallað hefði verið eftir upp­lýs­ingum um hvert end­an­legt eign­ar­hald á sjóðnum Auður 1 væri, enda segir í fjöl­miðla­lögum að nefndin eigi að fá allar upp­lýs­ingar og gögn svo „rekja megi eign­ar­hald og/eða yfir­ráð til ein­stak­linga, almennra félaga, opin­berra aðila og/eða þeirra sem veita þjón­ustu fyrir opin­bera aðila og getur fjöl­miðla­nefnd hvenær sem er kraf­ist þess að fram­an­greindar upp­lýs­ingar skuli veittar“.

Í svari Elvu á þriðju­dag kom fram að nefndin hefði leitað eftir upp­lýs­ingum um eign­ar­haldið í haust. „Við fengum þær upp­lýs­ingar að Virðing færi með yfir­ráð yfir Auði 1 og það væri byggt á því að starfs­menn Virð­ingar væru stjórn­ar­menn í Auði 1 og héldi á meiri­hluta atkvæð­is­réttar í félag­inu. Því skipta eig­endur sjóðs­ins ekki máli. Þeir hafi ekk­ert að gera með stefnu sjóðs­ins, heldur Virðing. Út frá fjöl­miðla­lög­unum eru það yfir­ráðin sem skipta öllu máli.[...] Það var mat nefnd­ar­innar, út frá þessum upp­lýs­ingum, að út frá eign­ar­hald­inu skipti ekki máli hverjir væru eig­end­urnir, heldur hverjir færu með yfir­ráð yfir sjóðnum. Og það er Virðing“.

Frummat, ekki stjórnvaldsákvörðun


Í pósti sem Elva sendi Kjarn­anum í dag segir að ákvörðun fjöl­miðla­nefndar hafi ekki verið stjórn­valds­á­kvörðun í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga, heldur hafi verið um frum­mat nefnd­ar­innar að ræða.

Í pósti Elvu segir enn­fremur: „ Vakin er athygli á því að sam­kvæmt 4. mgr. 17. gr. laga um fjöl­miðla getur fjöl­miðla­nefnd hvenær sem er kraf­ist upp­lýs­inga og gagna til að rekja megi eign­ar­hald og/eða yfir­ráð allra fjöl­miðla til ein­stak­linga, almennra félaga, opin­berra aðila og/eða þeirra sem veita þjón­ustu fyrir opin­bera aðila. Þess ber að geta að fjöl­miðla­nefnd hefur heim­ild til að leggja á stjórn­valds­sekt sé brotið gegn ákvæði 17. gr. um skil á upp­lýs­ingum um eign­ar­hald og yfir­ráð“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár