Vladímir Pútín valinn maður ársins í Rússlandi fimmtánda árið í röð

Forseti Rúss­lands, Vladímir Pútín, hefur verið val­inn maður árs­ins í Rúss­landi, fimmt­ánda árið í röð, í sjálf­stæðri könnun Public Opinion Foundation. Breska blaðið Independent gerði nið­ur­stöð­una að umtals­efni í umfjöllun sinni. Töluvert hefur verið gert úr þess­ari nið­ur­stöðu á hverju ári, und­an­farin fimmtán ár, þó að umfang könn­un­ar­innar sé veru­lega lítið í hlut­falli við íbúa­fjölda í Rúss­landi, en ríf­lega 143 millj­ónir manna búa í land­inu. Könnun náði til 1.500 manns í 43 héröðum lands­ins.

Óhætt er að segja að nið­ur­staðan komi fram á frekar slæmum tíma fyrir Pútín. Efna­hagur Rúss­lands er fall­valtur eftir stjórn­laust fall rúblunnar fyrr í vik­unni, sem meðal ann­ars er rakið til skarprar lækk­unar á olíu­verði. Frá því í júlí hefur verð á olíu fallið um meira en 40 pró­sent, sem hefur komið illa við olíu­iðn­að­inn í Rúss­landi. Seðla­banki Rúss­lands hefur reynt af veikum mætti að sporna gegn falli rúblunnar, meðal ann­ars með því að hækka stýri­vexti úr 10,5 í 17 pró­sent.

Drum roll ple­ase: Russia's man of the year for the 15th time in a row is... http://t.co/p8AiVtYySX pic.twitter.com/B2P9j7AH7D

— The Independent (@Independent) December 17, 2014

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár