Lægra olíuverð sparar Íslandi milljarða en Rússlandsverslun í vanda

Mikil lækkun á heims­mark­aðs­verði á olíu gerir það að verkum að íslensk fyr­ir­tæki, fyr­ir­tæki og útgerðir spara sér á annan tug millj­arða króna í elds­neytis­kostnað á ári. Þetta er haft eftir Sigurði Inga Frið­leifs­syni, for­stöðu­manni efna­hags­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins, í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar kemur einnig fram að lækkun olíu­verðs geti haft áhrif til lækk­unar á verð­bólgu, sem er nú þegar undir neðri vik­mörkum Seðla­banka Íslands. Í blað­inu segir Ásdís Krist­jáns­dóttir, for­stöðu­maður efna­hags­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins: „Ef verð­bólgan gengur áfram niður mun hann [Seðla­banki Íslands] þurfa að bregð­ast við með frek­ari vaxta­lækkun til þess eins að við­halda aðhalds­stígi pen­inga­stefn­unnar eins og það stendur í dag“.

[caption id="attachment_14027" align="alignnone" width="1024"] Olíuverð hefur hríð­fallið frá því í sumar.[/caption]

Vandræði Rússa smitast yfir á Ísland


Á for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins er sýnd önnur og nei­kvæð­ari mynd af falli olíu­verðs­ins. Það ríki sem hefur orðið efna­hags­lega hvað harð­ast fyrir barð­inu á því er Rússland. Þar í landi voru stýri­vextir hækk­aðir úr 10,5 pró­sent í 17 pró­sent á mánu­dag eftir mikið fall rúblunnar sam­hliða lækk­andi olíu­verði dag­anna á undan. Hækkunin hafði engin áhrif og gjald­miðla­hrun Rússa hefur haldið áfram. Rúblan hefur fallið um helm­ing gagn­vart banda­ríkja­dal það sem af er þessu ári.

Í Frétta­blað­inu er greint frá því að rúss­nesk fyr­ir­tæki skuldi íslenskum fisk­út­flytj­endum þrjá til fimm millj­arða króna fyrir upp­sjáv­ar­fisk sem þau hafi fengið, en ekki greitt fyrir. Íslenskir fisk­út­flytj­endur hafa stöðvað útflutn­ing til Rúss­lands í kjöl­far falls rúblunnar og eru nokkrir þeirra að kanna að gefa afslátt af skuldum sínum til að geta fengið greitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár