Félag atvinnurekenda vill að MS-rannsóknin fái flýtimeðferð

Félag atvinnu­rek­enda vill að mál Mjólk­ur­bús­ins Kú gegn Mjólk­ur­sam­söl­unni (MS), sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið þarf að rann­saka að nýju eftir að áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála vís­aði því aftur til eft­ir­lits­ins, fái flýti­með­ferð. Sam­keppn­is­eft­ir­litið sektaði MS um 370 millj­ónir króna í sept­em­ber vegna mis­notk­unar fyr­ir­tæk­is­ins á mark­aðs­ráð­andi stöðu þess og þar af leið­andi fyrir brot á sam­keppn­is­lögum. Málið snérist um að MS hefði selt sam­keppn­is­að­ilum Kú, sem eru tengdir MS, hrá­mjólk á 17 pró­sent lægra verði en því sem Kú bauðst.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið upp­lýsti um það í gær að áður óþekktur samn­ingur milli MS og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga (KS), sem á hlut í MS, hefði verið lagður fram við munn­legan mál­flutn­ing fyrir áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála. MS hafi enn­fremur byggt mál­flutn­ing sinn fyrir nefnd­inni á þessum samn­ingi. MS lét ekki vita af til­urð þessa samn­ings á meðan að rann­sókn máls­ins stóð yfir hjá Sam­keppn­is­yf­ir­völdum.

Vilja endanlega niðurstöðu sem fyrst


Áfrýj­un­ar­nefndin komst því að þeirri nið­ur­stöðu að fellla yrði fyrri úrskurð úr gildi þar sem MS lét við undir höfuð leggj­ast að upp­lýsa stofn­un­ina um þennan áður óþekktan samn­ing við KS. Að mati nefnd­ar­innar komu ekki fram full­nægj­andi skýr­ingar af hálfu MS á fram­kvæmd samn­ings­ins fyrir nefnd­inni. Því mun Sam­keppn­is­eft­ir­litið rann­saka málið aftur, með hlið­sjón af umræddum samn­ingi, og kom­ast að nýrri nið­ur­stöðu um hvort MS hafi brotið sam­keppn­is­lög.

[caption id="attachment_12503" align="align­right" width="150"] Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmd­ar­stjóri Félags atvinnu­rek­enda.[/caption]

Í frétt á vef Félags atvinnu­rek­enda er þrýst á að málið fái flýti­með­ferð. Þar er haft eftir Ólafi Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóra félags­ins, að það orki mjög tví­mælis að öflug, mark­aðs­ráð­andi fyr­ir­tæki kom­ist upp með að tefja máls­með­ferð­ina með því að leyna fyrir Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu gögnum sem síðan séu dregin upp við máls­með­ferð­ina hjá áfrýj­un­ar­nefnd.Það sé lyk­il­at­riði fyrir smærri keppi­nauta Mjólk­ur­sam­söl­unnar að hin nýja rann­sókn fari ekki í hefð­bund­inn margra mán­aða far­veg hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu heldur fái málið flýti­með­ferð þannig að end­an­leg nið­ur­staða liggi fyrir sem fyrst. „Það er sömu­leiðis brýnt hags­muna­mál fyrir neyt­endur, sér­stak­lega í ljósi þess að meint brot MS hafa verið á fleiri sviðum. Hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu er til með­ferðar sam­bæri­leg kvörtun frá Kú vegna sölu á rjóma og brýnt að nið­ur­staða í því máli fáist sem fyrst,“ segir Ólafur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár