Forsætisráðherra Noregs: Erum á leið inn í óvissutíma

For­sæt­is­ráð­herra Noregs, Erna Solberg, sagði á blaða­manna­fundi í dag á efna­hagur Noregs væri nú kom­inn inn í mikið óvissu­tíma­bil. Ástæðan er hið gríð­ar­lega mikla fall á olíu­verði á und­an­förnum fimm mán­uðum, en fatið af olíu er nú komið undir 60 Banda­ríkja­dali, í fyrsta skipti frá því í byrjun árs 2009, en þá féll verðið hratt í kjöl­far dýpsta punkts fjár­málakrepp­unnar. Eft­ir­spurn á heims­mörk­uðum hrundi þá skömmum tíma, með til­heyr­andi áhrifum á nær alla eigna­flokka.

Solberg sagði að nú væri Norðmenn komnir að vendi­punkti og þyrftu að taka afleið­ing­unum. Líklegt væri að þessi þróun hefði áhrif á olíu­fram­leiðslu í norskri lög­sögu á næsta ári og að draga myndi úr henni.

Í grein norska við­skipta­vefs­ins Dagens Nær­ingsliv, www.dn.no, kemur fram að for­sendur fjár­laga í Noregi séu hugs­an­lega brostnar sökum þess hvernig þró­unin hefur verið und­an­farna daga, en norska krónan féll um átta pró­sent gagn­vart evr­unni í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár