Herskáir Talíbanar drápu 145, þar af 132 börn

Herskáir Talí­banar í Pakistan gerðu árás á skóla í Peshawar í Pakistan í morgun sem kost­aði 145 lífið, þar af 132 börn. Ekki er ólík­legt að tala lát­inna muni hækka, sam­kvæmt frá­sögnum fjöl­miðla. Samtals eru 114 slas­aðir og særðir en árás­ar­menn­irnir voru vopn­aðir skot­vopnum með sprengju­vesti um sig og strá­felldu börn, kenn­ara og starfs­fólk með skot­hríð. Þeir færðu sig á milli skóla­stofa og reyndu að skjóta alla sem þeir sáu, sam­kvæmt frá­sögn vitna og eft­ir­lif­enda sem BBC ræðir við í umfjöllun sinni.

[caption id="attachment_14666" align="aligncenter" width="1024"] Samtals voru 132 börn drepin í mis­kunn­ar­lausri árás byssumana úr röðum Talíbana í Pakistan. Mynd: AFP[/caption]

Herinn í Pakistan hefur nú fellt alla þá sem að árásinni stóðu eftir átta tíma bar­daga, sam­kvæmt frá­sögn breska rík­is­út­varps­ins BBC. Mikil ringul­reið er á staðnum, einkum á sjúkra­húsum, þar sem skelf­ing­ar­lostnir for­eldrar barna í skól­anum reyna að ná sam­bandi við börn sín eða kom­ast að því hvort þau eru á meðal þeirra sem lét­ust. Lík hafa verið borin út í kistum af sjúkra­hús­inu í Peshawar, en mikið öng­þveiti hefur skap­ast við spít­al­ann.

Þetta er mann­skæð­asta hryðju­verka­árás Talíbana til þessa í Pakistan. For­sæt­is­ráð­herra Pakistan, Nawaz Sharif, hefur þegar lýst yfir þjóð­ar­sorg og þjóð­ar­leið­togar um allan heim hafa for­dæmt voða­verkin.

Uppfært: New York Times greinir frá því að tala lát­inna sé komin upp í 145, og mögu­legt sé að hún hækki enn þar sem margir þeirra særðu eru með lífs­hættu­lega áverka. Í fyrstu útgáfu frétt­ar­innar var frá því greint að 141 væri lát­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár