Ekki upplýst um hverjir endanlegir eigendur 19 prósent hlutar í 365 eru

Fjöl­miðla­nefnd verður ekki upp­lýst um hverjir end­an­legir eig­endur 18,6 pró­sent hlutar í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu 365 miðlum eru og mun ekki fara fram á frek­ari upp­lýs­ingar um þá. Þetta stað­festir Elva Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri nefnd­ar­innar, í sam­tali við Kjarnann.

Í fjöl­miðla­lög­unum sem sam­þykkt voru árið 2011 segir að skylt sé að veita fjöl­miðla­nefnd öll gögn og upp­lýs­ingar svo „rekja megi eign­ar­hald og/eða yfir­ráð til ein­stak­linga, almennra félaga, opin­berra aðila og/eða þeirra sem veita þjón­ustu fyrir opin­bera aðila og getur fjöl­miðla­nefnd hvenær sem er kraf­ist þess að fram­an­greindar upp­lýs­ingar skuli veittar“.

[quote font="0" align="right"]Og nú er ljóst að það breytir engu þótt slíkur sjóður sé orð­inn eig­andi að langstærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki í einka­eigu í land­inu, sem rekur meðal ann­ars Frétta­blaðið, Stöð 2, Vísi.is og Bylgjuna.[/quote]

Síð­ast­lið­inn föstu­dag var send út til­kynn­ing um að 365 miðlar og Tal hafi sam­ein­ast undir merkjum 365 eftir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykkti sam­runa félag­anna, með skil­yrðum. Við það eign­uð­ust fyrrum hlut­hafar Tals 19,8 pró­sent hlut í sam­ein­uðu félagi, sem mun bera nafn 365 miðla. Stærsti eig­andi Tals er Auður 1, sjóður í stýr­ingu hjá Virðingu, en hann á 18,6 pró­sent beinan hlut í 365 miðlum eftir að sam­run­inn gekk í gegn. Líkt og tíðkast með fram­taks- og fjár­fest­inga­sjóði er eign­ar­hald hans ekki opin­bert. Og nú er ljóst að það breytir engu þótt slíkur sjóður sé orð­inn eig­andi að langstærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki í einka­eigu í land­inu, sem rekur meðal ann­ars Frétta­blaðið, Stöð 2, Vísi.is og Bylgjuna.

Í fjöl­miðla­nefnd, sem tók ákvörðun um miðjan nóv­em­ber um að kalla ekki eftir upp­lýs­ingum um end­an­legt eign­ar­hald á 18,6 pró­sent hlut í 365 miðlum, sitja Karl Axelsson, for­maður nefnd­ar­innar, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, Hulda Árna­dóttir, Arna Schram og Salvör Nordal.

Eigendur ekki taldir skipta máli


Auður 1 er fram­taks­sjóður sem er rekstri fjár­mála­fyr­ir­tæk­is­ins Virð­ingar. Hann var stofn­aður árið 2008 og þá lögðu rúm­lega 20 fjár­festar honum til alls 3,2 millj­arða króna. Tal er eitt átta fyr­ir­tækja sem sjóð­ur­inn á hlut í. Heim­ildir Kjarnans herma að á meðal stærstu eig­enda hans séu íslenskir líf­eyr­is­sjóðir auk þess sem nokkrir ein­stak­lingar eiga í sjóðnum en það hefur aldrei verið upp­lýst hverja um er að ræða.

[quote font="0" align="right"]Við fengum þær upp­lýs­ingar að Virðing færi með yfir­ráð yfir Auði 1 og það væri byggt á því að starfs­menn Virð­ingar væru stjórn­ar­menn í Auði 1 og héldi á meiri­hluta atkvæð­is­réttar í félag­inu. Því skipta eig­endur sjóðs­ins ekki máli.[/quote]

Fjöl­miðla­nefnd leit­aði eftir upp­lýs­ingum um eign­ar­haldið í haust, að sögn Elvu. „Við fengum þær upp­lýs­ingar að Virðing færi með yfir­ráð yfir Auði 1 og það væri byggt á því að starfs­menn Virð­ingar væru stjórn­ar­menn í Auði 1 og héldi á meiri­hluta atkvæð­is­réttar í félag­inu. Því skipta eig­endur sjóðs­ins ekki máli. Þeir hafi ekk­ert að gera með stefnu sjóðs­ins, heldur Virðing. Út frá fjöl­miðla­lög­unum eru það yfir­ráðin sem skipta öllu máli.“

Í kjöl­farið hafi fjöl­miðla­nefnd tekið þá ákvörðun að ekki þyrfti að upp­lýsa nánar um hverjir end­an­legir eig­endur Auðar 1 væru. „Það var mat nefnd­ar­innar, út frá þessum upp­lýs­ingum, að út frá eign­ar­hald­inu skipti ekki máli hverjir væru eig­end­urnir, heldur hverjir færu með yfir­ráð yfir sjóðnum. Og það er Virðing,“ segir Elva.

Nokkur félög í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur verða áfram helstu eig­endur 365 miðla. Þau tóku við eign­ar­hald­inu af Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, eig­in­manni Ingi­bjargar, sem fékk að kaupa fjöl­miðla 365 skömmu eftir hrun. Hann hafði einnig verið aðal­eig­andi gamla 365, sem fór síðar í þrot og gat ekki greitt kröfu­höfum sínum um 3,7 millj­arða króna.

Samruni samþykktur með skilyrðum


Sam­keppn­is­eft­ir­litið til­kynnti í dag um að sam­runi 365 miðla og Tals hefði verið sam­þykktur með skil­yrðum. Alls er um fjögur skil­yrði að ræða:

  • Óheimilt er að gera það að skil­yrði fyrir kaupum á þjón­ustu sem fyr­ir­tækið veitir á fjöl­miðla­mark­aði að fjar­skipta­þjón­usta félags­ins fylgi með í kaup­unum.



  • Óheimilt að tvinna saman í sölu fjöl­miðla­þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins og fjar­skipta­þjón­ustu þess gegn verði eða við­skipta­kjörum sem jafna má til slíks skil­yrðis. Óheimilt er að gefa ein­staka þjón­ustu­þætti í heild sinni.



  • Þá er til­tekið að inn­leið­ingu og upp­bygg­ingu þjón­ustu á far­síma- og sjón­varps­dreif­ing­ar­mark­aði skuli lokið eigi síðar en 1. apríl 2016 og taka skil­yrði þá að fullu gildi gagn­vart þeirri þjón­ustu. Að öðru leyti taka skil­yrðin strax gildi.



  • Gæta skal gagn­sæis í verð­lagn­ingu mis­mun­andi þjón­ustu­þátta fyr­ir­tæk­is­ins.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár