Einkaneyslan eykst um eitt prósent milli ára

Stofnun um fjár­mála­læsi og Meniga hafa tekið saman helstu útgjalda­flokka Meniga­not­enda og breyt­ingar á þeim. Nið­ur­staða sam­an­tekt­ar­innar er að einka­neysla hefur vaxið um 1 % á fyrstu ell­efu mán­uði árs­ins miðað við árið í fyrra.

Í nið­ur­broti á hlut­deild helstu útgjalda­flokka sést að inn­kaup í mat­vöru­versl­unum eru 30%, elds­neytis­kaup 14%, til­bú­inn matur tæp 11% og kaup í hús­gagna- og bygg­inga­vöru­versl­unum 10%.

Með­al­velta Meniga­not­enda í mat­vöru­versl­unum jókst um 3% ef fyrstu ell­efu mán­uðir árs­ins eru bornir saman við sama tíma­bil á fyrra ári. Við­skipti við bens­ín­stöðvar dróst saman um tæp 3% og kaup á til­búnum mat juk­ust um tæp 7%.


Hlut­falls­leg aukn­ing útgjalda til fjar­skipta­fyr­ir­tækja var 7% og til bygg­inga­vöru- og hús­gagna­versl­ana var 6,5%. Þá dró úr útgjöldum við fjöl­miðla um tæp 7%.

Mikil aukning í erlendri vefverslun, en fólk eyðir minna


Heild­ar­velta vef­versl­unar jókst um tæp 23% fyrstu ell­efu mán­uði árs­ins sem skýrist aðal­lega af því að fleiri versla á net­inu en áður. Fjöldi Meniga­not­enda sem versl­uðu á net­inu jókst um tæp 32% á milli ára. Á sama tíma lækk­aði með­al­upp­hæð versl­unar um tæp 7% sem lík­lega má skýra með styrk­ingu krón­unnar.

Und­an­farin ár hefur vef­versl­unin náð hámarki í nóv­em­ber og lík­legt má telja að kaup­endur séu að versla fyrir jólin. Ef litið er til síð­ustu þriggja mán­aða sést að það eru tveir turnar á mark­að­inum. Lang­vin­sæl­ustu vef­versl­an­irnar eru Amazon og Ali­Ex­press, en þrjár af hverjum fjórum krónum sem verslað er með á net­inu rata til Amazon eða Ali­Ex­press. Verslun hjá Amazon hefur auk­ist á milli ára um 12% og um 23% hjá Ali­Ex­press. Sé ein­ungis litið til nóv­em­ber­mán­aðar hefur vef­verslun við Amazon auk­ist um 10% og um 3% hjá Ali­Ex­press.

Af þeim Meniga­not­endum sem verslað hafa á net­inu á síð­ustu þrjá mán­uðum hefur rúm­lega helm­ingur verslað við Amazon á tíma­bil­inu og rúm­lega þriðj­ungur við Ali­Ex­press. Það er um 5% aukn­ing hjá Amazon og 40% aukn­ing hjá Ali­Ex­press miðað við sama tíma­bil í fyrra.

Með­al­verslun Men­inga­not­enda hjá Amazon nemur rúmum 6.500 krónum og hefur hækkað um tæp 14% á meðan með­al­upp­hæð hefur lækkað um tæp 25% hjá Ali­Ex­press og nemur nú rúmum 4.100.


Allar tölur mið­ast við breyti­legt verð­lag, þ.e.a.s. ekki er leið­rétt fyrir verð­bólgu. Ofan­greindar upp­lýs­ingar eru fengnar úr Meniga­hag­kerf­inu og unnar í sam­starfi Stofn­unar um fjár­mála­læsi og Meniga. Meniga hjálpar fólki að halda utan um fjár­mál heim­il­is­ins og er heild­ar­fjöldi not­enda um 40.000. Aldrei er unnið með per­sónu­grein­an­leg gögn í Meniga hag­kerf­inu. Nánari upp­lýs­ingar má finna á www.fe.is og www.meniga.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár