Félagsmenn SAF vildu komugjöld - settu náttúrupassa í 6. sætið

Eftir að Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, til­kynnti síð­asta vor að ekki væri á von á frum­varpi um nátt­úrupassa á vor­þingi, ákváðu Samtök ferða­þjón­ust­unar (SAF) að kanna hug félags­manna sinna til þeirra gjald­töku­leiða sem helst höfðu verið til umræðu til að standa straum af kostn­aði við varð­veislu og upp­bygg­ingu ferða­manna­staða á Íslandi. Samtökin sáu sér þá leik á borði í kjöl­far til­kynn­ingar ráð­herra um að dráttur yrði á nátt­úrupass­anum, til að skapa víð­tæka sátt um þá leið sem sam­tökin ættu að fylkja sér á bak­við.

Samtökin réðu til sín ráð­gjafa og í gang fóru funda­höld með félags­mönnum víðs vegar um land, en auk þess var skoð­ana­könnun send félags­mönnum í maí­mán­uði, þar sem þeir voru spurðir að því hvaða skil­yrði fyr­ir­huguð gjald­taka yrði að upp­fylla. Nið­ur­stöð­urnar voru afger­andi. Félags­menn SAF lögðu áherslu á að ásýnd ferða­manna­staða myndu ekki taka breyt­ingum vegna gjald­tök­unnar, til að mynda með til­komu gjald­skýla eða eft­ir­lits­manna.

Félagsmenn SAF settu komugjöld í fyrsta sætið


Á félags­fundi í júní lá nið­ur­staða félags­manna SAF fyrir. Val­kost­unum var raðað upp á lista, eftir for­gangs­röð, sem sam­tökin ættu að beita sér fyrir að yrðu ofan á. Í fyrsta sætið voru sett svokölluð komu­gjöld, eða hóf­legt gjald á alla far­þega sem koma inn til lands­ins. Félags­mönnum SAF þótti fyr­ir­komu­lagið ein­falt og skil­virkt, auk þess sem gjald­takan yrði ein­föld í útfærslu, það er að gjaldið yrði haft inn í far­miða­verðum flug­fé­lag­anna.

Sérstakt landamæra­gjald var sett í annað sæti list­ans, sem er sam­bæri­legt við komu­gjaldið, nema þá myndi sér­stakt gjald vera inn­heimt við kom­una til lands­ins, í stað þess að flug­fé­lögin sæu um inn­heimt­una.

Í þriðja sæti var krafa um að hið opin­bera myndi veita meira fé til varð­veislu og upp­bygg­ingu ferða­manna­staða, á þeim rökum að ferða­þjón­ustan væri nú þegar að skila góðum tekjum í rík­is­sjóð í formi skatta.

[quote font="0" align="right"]„Ráðu­neytið hafi tjáð sam­tök­unum að sér­stök komu- eða landamæra­gjöld, væru ekki fram­kvæm­an­leg þar sem þau brjóti í bága við alþjóð­lega samn­inga, til að mynda Shengen og EES-samn­ing­inn.“[/quote]

Hækkun gistin­átta­gjalds þótti fjórði álit­leg­asti kost­ur­inn, og í fimmta sæti var hug­mynd um að ferða­þjón­ustan kæmi á fót sér­stökum sjóði sem myndi standa straum af nátt­úru­vernd og öðru til­heyr­andi. Sjóð­ur­inn yrði fjár­magn­aður með gjöldum sem ferða­þjón­ustan myndi inn­heimta og úthluta sjálf. Hug­myndin var ekki síst sprott­inn af efa­semdum aðila innan ferða­þjón­ust­unnar að fjár­magnið myndi ekki skila sér að fullu til geirans ef rík­is­sjóður sæi um inn­heimt­una.

Í sjötta sæti var svo hinn umdeildi nátt­úrupassi, sem er sú leið sem iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra hefur nú ákveðið að fara, og gjald­taka land­eig­enda rak lest­ina í sjö­unda sæti list­ans.

Stjórn SAF ákveður að hampa fjórða kostinum


Eftir að hafa kannað ger­leika val­kost­anna ákvað stjórn SAF á dög­unum að leggja til að gistin­átta­gjaldið yrði hækkað til að kosta bráð­nauð­syn­legar aðgerðir í þágu ferða­þjón­ust­unnar. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans olli ákvörðun stjórn­ar­innar, um að fara þessa leið, tölu­verða furðu og reiði á meðal hótel- og gisti­húsa­eig­enda sem að minnsta kosti í einu til­felli leiddi til úrsagnar úr sam­tök­unum. Heim­ildir Kjarnans herma að fleiri aðilar í gisti­rekstri hygg­ist gera slíkt hið sama.

Helga Árna­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SAF, segir í sam­tali við Kjarnann, að ákvörðun stjórn­ar­innar um að leggja til hækkun gistin­átta­gjalds, hafi meðal ann­ars byggt á sam­skiptum við atvinnu­vega­ráðu­neytið. Ráðu­neytið hafi tjáð sam­tök­unum að sér­stök komu- eða landamæra­gjöld, væru ekki fram­kvæm­an­leg þar sem þau brjóti í bága við alþjóð­lega samn­inga, til að mynda Shengen og EES-samn­ing­inn. Þá hafi sömu­leiðis ekki þótt ráð­legt að leggja á komu­gjöld, þar sem inn­an­lands­flugið yrði ekki und­an­skilið þeim.

[caption id="attachment_14643" align="aligncenter" width="640"] Ferða­mönnum á Íslandi hefur fjölgað mikið und­an­farin ár, og við­búið er að þeim haldi áfram að fjölga.[/caption]

Helstu rök atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins fyrir því að ekki sé hægt að ráð­ast í sér­stök komu- og/eða brott­far­ar­gjöld, eru að þau yrðu flokkuð sem landamæra­gjöld og hvorki megi leggja þau á íbúa á EES-svæð­inu né í Schengen lönd­unum. Þá hafi ekki verið talin far­sæl leið að inn­heimta slík gjöld ein­ungis af hluta ferða­manna. Enda kveður EES-samn­ing­ur­inn á um ein­hlýtt bann við hverslags mis­munun vegna þjóð­ernis.

Komugjöld lifa góðu lífi innan Evrópusambandsins


Í Bret­landi, sem á aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, hefur verið við lýði sér­stakur flug­far­þega­skattur (Air Passen­ger Duty) und­an­farin ár. Bresk stjórn­völd rukka flug­far­þega um þrettán evrur, eða um rétt rúmar 2000 krónur, að því er þau segja vegna nátt­úru­vernd­ar­sjón­ar­miða, en upp­hæðin hækkar í sam­ræmi við lengd flug­ferða. Flug­far­þegar sem milli­lenda á Bret­landseyjum, á leið­inni úr landi, eru und­an­skildir skatt­inum. Skatt­heimtan gildir jafnt um inn­an­lands­flug og milli­landa­flug, með því skil­yrði að umrædd flug­vél sé þyngri en tíu tonn og beri fleiri en tutt­ugu far­þega.

Þjóð­verjar, sem eiga sömu­leiðis aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, rukka líka sér­stakt brott­far­ar­gjald. Það nemur 7,5 evrum, sé flogið innan Evrópu, og getur hækkað upp í ríf­lega 42 evrur á lengri flug­leiðum. Svipað fyr­ir­komu­lag er við lýði í Aust­ur­ríki. Frakkar, enn önnur Evr­ópu­sam­bands­þjóðin, rukka rúm­lega eina evru í far­þega­skatt innan EES-svæð­is­ins og röskar 4,5 evrur utan þess, en upp­hæð­inni er varið til mann­úð­ar­mála.

[quote font="0" align="right"]„Sér­stakur far­þega­skattur er þannig ekki við lýði í inn­an­lands­flugi, en hann var aflagður á Íslandi árið 2010.“[/quote]

Írar settu sér­stakt brott­far­ar­gjald árið 2009. Gjaldið hljóð­aði þá upp á tíu evrur, fyrir far­þega sem flugu lengra en 300 kíló­metra frá Dublin, en tvær evrur fyrir þá sem flugu styttra. Vegna þess að fyr­ir­komu­lagið hafði í för með sér að nán­ast öll flug til ann­arra landa voru á hærra gjald­inu, en inn­an­lands­flug á því lægra, var gjald­inu breytt í þrjár evrur árið 2011, óháð lengd flugs. Enda kveða lög Evr­ópu­sam­bands­ins á um að ekki megi leggja hærri gjöld á flug­þjón­ustu milli landa ESB en innan hvers lands.

Stjórnvöldum kunnugt um fordæmi innan EES


Í skýrslu ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Alta, sem unnin var fyrir Ferða­mála­stofu árið 2013, að beiðni atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins, er fjallað um brott­farar- og komu­gjöld á flug­far­þega. Þar kemur fram að all­mörg lönd inn­heimti slík gjöld, sem séu oft­ast í formi brott­far­ar­gjalda. Í flestum til­fellum sé flug­fé­lögum falið að inn­heimta gjaldið og sé það þá inn­heimt við kaup á flug­mið­anum. Nær öll for­dæmin hér að ofan eru rakin í skýrsl­unni. Þá telja skýrslu­höf­undar að gjald­töku­leiðin sé bæði raun­hæf og fremur ein­föld til notk­unar hér á landi.

Í dag greiða flug­far­þegar sem fara um Kefla­vík­ur­flug­völl sér­stakt brott­far­ar­gjald, sem er 900 krónur á sumrin og 450 krónur á vet­urna. Þá greiða flug­far­þegar í inn­an­lands­flugi, sem fljúga frá Reykja­vík­ur­flug­velli, 1.200 krónur í sér­stakt far­þega­gjald sem renna til rekst­urs flug­vall­ar­ins. Sama fyr­ir­komu­lag er fyrir hendi á öðrum flug­völlum lands­ins en þar er gjaldið lægra. Sér­stakur far­þega­skattur er þannig ekki við lýði í inn­an­lands­flugi, en hann var aflagður á Íslandi árið 2010.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár