„Hættulega“ vinsælt samfélagsmiðlatröll

Dan Bilzerian er vin­sæll á sam­fé­lags­miðlum og hefur verið kall­aður kon­ungur Instagram vegna vin­sælda hans þar, en 5,8 millj­ónir manna eru fylgj­endur hans á miðl­inum. Í Banda­ríkj­unum hefur farið fram mikil umræða að und­an­förnu um ímynd hans og vin­sæld­irnar, hvernig hann birt­ist millj­ónum manna um allan heim og hvort fram­ferði hans ýti undir hlut­gerv­ingu kvenna og bein­línis ofbeldi. Hann er sam­an­lagt með tæp­lega fjórtán millj­ónir manna í sam­fé­lags­miðla­neti sínu og því áhrifa­mik­ill, svo ekki sé meira sagt. Sér­stak­lega er það gjá­líf­is­lífstíll hans og staðalí­mynd­irnar sem hann gerir í því að ýta undir, einkum með myndum af sér með skot­vopn, reiðufé, sport­bíla, snekkjur og konur í kringum sig.




This crew could bring down a convent


A photo posted by Dan Bilzerian (@danbilzerian) on Dec 12, 2014 at 5:30pm PST

Djúpar rannsóknir ekki fyrir hendi

Sam­fé­lags­miðl­arnir eru til­tölu­lega nýtt fyr­ir­bæri, með kostum sínum og göllum. Í reynd er lítið vitað um áhrif þeirra á hegðun fólks, skoð­ana­myndun og líf­sýn. Engar lang­tíma­rann­sóknir á félags­legum áhrifum sam­fé­lags­miðl­ana liggja fyrir, enda er það ógjörn­ingur í ljósi þess stutta tíma sem inn­reið þeirra hefur varað. Aðeins er tæp­lega ára­tugur frá því sam­fé­lags­miðlar á borð við Facebook, Instagram og Twitter voru stofn­aðir sem fyr­ir­tæki (Facebook elstur, stofn­aður 2004), en vöxtur þeirra, útbreiðsla og áhrif hafa marg­fald­ast ár frá ári, einkum frá árinu 2008. Hlutverk þeirra í lífi fólks er fyrir löngu orðið það vega­mikið að hefð­bundnir fjöl­miðlar eru hvergi nærri eins áhrifa­miklir, í það minnsta á þann mæli­kvarða að fólk eyðir mun meiri tíma í að nálg­ast upp­lýs­ingar í gegnum sam­fé­lags­miðla heldur en beint hjá hefð­bundnum fjöl­miðlum. Þeir leggja til efni, sem sam­fé­lags­miðl­arnir grípa, en það er aðeins lít­ill hluti af öllu því sem berst milli fólks í gegnum sam­teng­ingu sam­fé­lags­miðl­anna. Í dag eru ríf­lega tveir millj­arðar ein­stak­linga skráðir sem not­endur á sam­fé­lags­miðlum heims­ins, þar af flestir á miðlum sem heyra undir

Facebook

. Um 1,3 millj­arða manna eru með Facebook aðgang, og þar af eru 864 millj­ónir manna með dag­lega notkun. Á Instagram, sem Facebook á, eru not­end­urnir um 300 millj­ónir og flestir mun virk­ari en not­endur Facebook. Ótrúlegt er að hugsa til þess að þessi not­enda­upp­bygg­ing hafi átt sér stað á aðeins nokkrum árum en hún nær til 23 pró­senta af íbúum jarðar, og hlut­fallið hækkar stöðugt.

Tilverugrundvöllur Dan Bilzerian

Það er í þessum veru­leika sem Dan Bilzerian hefur orðið að áhrifa­valdi um allan heim, hvort sem fólki líkar það betur eða verr. Með grófri fram­setn­ingu á myndum, einkum af létt­klæddum eða nöktum konum, oft í sam­hengi við pen­inga­búnt og trylli­tæki ýmis konar, fór hann að afla sér vin­sælda sem hafa breytt honum í tákn­mynd vel­gengni í hugum margra. Alls ekki allra þó, sem telja sig sjá í gegnum falska ver­öld þessa fyrr­ver­andi her­manns, og hafa fjöl­miðlar í Banda­ríkj­unum meðal ann­ars velt því upp, hvernig hann fari að þessu. Hvaðan koma pen­ing­arnir? Að þessu spurði Wall Street Journal, einn útbreidd­asti fjöl­mið­ill heims­ins, í

ítar­legri umfjöllun

um Bilzerian í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Bilzerian segir í sam­tali við Wall Street Journal að hann sé með fulla vasa fjár vegna pen­inga sem hann hafi unnið í póker, en er ekki til­bú­inn að tjá sig frekar um auð sinn. Eins og greint var frá í

frétta­skýr­ingu

um Bilzerian á vef Kjarnans í gær hefur hann við­ur­kennt að hafa aðgang að sér­stökum sjóði (Trust fund) sem faðir hans,

Paul Bilzerian

, gaf honum. Sá hefur átt skraut­legan feril sem fjár­festir og er nú með banda­ríska fjár­málal­eft­ir­litið (SEC) á hæl­unum vegna vafa­samra aðferða við að ávaxta fjár­fest­ingar sínar og und­an­skot frá skatti. Það sem líka fylgdi sög­unni er að hann er tal­inn hafa skotið þessum fjár­munum undan kröfu­höfum sínum. Ekki er vitað hversu miklir pen­ingar þetta eru, en miðað við lífstíl­inn hjá syni hans er ljóst að þetta gætu verið miklir fjár­munir.




Packed for Art Basel, say what you will about my shitty clothes, my accessories are fas­hiona­ble


Фото опубликовано Dan Bilzerian (@danbilzerian) дек 12, 2014 at 2:20 PST

Fyrst ris og síðan fall?

Eftir ógn­ar­hraðan vöxt á sam­fé­lags­miðla neti sínu á þessu ári eru teikn á lofti um að hin umdeilda ímynd hans sé að falla og það með nokkrum hvelli. Nokkur atvik að und­an­förnu benda til þess að hann sé ekki með öllum mjalla, sé bein­línis hættu­legur umhverfi sínu og beiti konur mis­kunn­ar­lausu ofbeldi. Hann hefur verið kærður fyrir að sparka í haus­inn á fyr­ir­sæt­unni Vanessu Castano á næt­ur­klúbbi í Miami í síð­ustu viku, en dóms­nið­ur­staða liggur ekki fyrir enn. Þá var Bilzerian hand­tek­inn á flug­vell­inum í Los Angeles í síð­ustu viku, grun­aður um að hafa brotið lögum um með­ferð vopna á opin­beru landi, þegar hann var að sprengja upp ýmsa hluti í Kali­fornínu. Óljóst er hvort hann mun verða ákærður en yfir­gnæf­andi líkur eru á því, þar sem mynd­bönd sem hann tók upp sjálfur þykja sýna glögg­lega að hann hafi brotið gegn lögum.

Ímynd­ar­stríð Bilzerian gæti því allt eins tap­ast fyrir hann sjálfan á end­anum, þó hann láti eins og hann lifi full­komnu lífi. Hvort hið áhrifa­mikla dag­skrár­vald sem sam­fé­lags­miðla­að­gangar hans hafa í lífi fólks verður til­efni til frek­ari umræðu um staðalí­myndir og hlut­gerv­ingu, þegar að fjöl­miðlun og sam­fé­lags­miðl­unum kemur, skal ósagt látið. En margt bendir til þess að ekki sé van­þörf á að kafa dýpra ofan í þau mál, eins og hið opin­bera vafa­sama glaum­gosa­líf­erni Bilzerian er til vitnis um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár