Byssumaður tekur fólk í gíslingu á kaffihúsi í Sidney

Í það minnsta einn maður vopn­aður skot­vopni hefur tekið gesti á kaffi­húsi í gísl­ingu í Sidney, sam­kvæmt frá­sögn breska rík­is­út­varps­ins BBC. Samkvæmt frá­sögn BBC standa þrír ein­stak­lingar við glugga á kaffi­hús­inu og er svartur fáni með arab­ísku letri í glugg­anum.

Mikill við­bún­aður er í borg­inni vegna þessa og hafa mörg hund­ruð lög­reglu­menn hafa girt af Martin Place og nágrenni í Sidney auk þess sem vin­sælir ferða­manna­staðir, eins og Óperu­húsið í Sidney, hafa verið rýmdir.

Þá hefur loft­helgi yfir Sidney einnig verið stýrt með þeim hætti, og flug­um­ferð er ekki leyfi­leg yfir borg­inni.

Fréttin verður upp­færð eftir því sem upp­lýs­ingar ber­ast í gegnum stað­festar fréttir erlendra fjöl­miðla.

Uppfært: For­sæt­is­ráð­herra Ástralíu, Tony Abbott, segir að stjórn­völd séu í við­bragðs­stöðu vegna hryðju­verkaógnar og að alþjóð­legt sam­starf um að ná með sem bestum hætti utan um það sem hefur gerst sé þegar komið af stað. Þá bað hann Ástrala um að halda ró sinni, allt yrði gerð til þess að frelsa gísl­ana. Um 20 manns eru inn á kaffi­hús­inu, Lindt Chocalet Coffee, en það er nærri ýmsum opin­berum bygg­ingum, þar á meðal skrif­stofum þing­manna og þing­hús­inu sjálfu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár