Dan Bilzerian: Kynlíf, byssur, reiðufé og samfélagsmiðlarnir

Maður er nefndur Dan Bilzerian. Hann er 34 ára gam­all fyrr­ver­andi banda­rískur her­maður, var næstum orð­inn sér­sveit­ar­maður en lenti upp á kant við yfir­menn sína í hernum og lauk ekki loka­prófi til þess að kom­ast inn. Hann er í dag fjár­festir, pókerspil­ari og sam­fé­lags­miðla aug­lýs­inga­maður. Hann selur fyr­ir­tækjum umfjall­anir í gegnum gríð­ar­lega stór sam­fé­lags­miðla­net sem hann hefur byggt upp, en aug­lýs­ing­arnar birt­ast oft­ast nær í gegnum myndir á Instagram svæði hans. Samtals er Bilzerian með 6,8 millj­ónir fylgj­enda á Facebook, 5,8 millj­ónir á Instagram og ríf­lega eina milljón á Twitter. Samtals er hann með 13,6 millj­ónir fylgj­enda og þeim fjölgar ört. Algengt er að meira en 400 þús­und manns like-i við myndir hans á Instagram.


Skilgreiningin á glaumgósa

Bilzerian lifir hátt, svo ekki sé fastar að orðið kveðið. Hann er líka fífl­djarfur, grófur í talsmáta og fram­setn­ingu á sam­fé­lags­miðlum, og upp­á­tækja­samur. Þannig komst hann í frétt­irnar fyrir að kasta klám­mynda­leikkon­unni Janice Griffith af hús­þaki ofan í sund­laug, með þeim afleið­ingum að hún fót­brotn­aði, og í síð­ustu viku fór hann langt yfir strikið þegar hann réðst á konu, fyr­ir­sæt­una Vanessu Castano, á næt­ur­klúbbi í Miami. Hann hefur beðist afsök­unar á því, með sem­ingi þó. Á sam­fé­lags­miðlum birti hann yfir­lýs­ing­una: Fangelsi...Við skulum ekki gera það aftur. (Jail... Lets not do that again.) Castano íhugar mál­sókn gegn honum vegna árás­ar­innar. Hann er þó alls ekki laus allra mála vegna þess og gæti átt von á ákæru. Þá hafa lög­reglu­yf­ir­völ í Los Angeles hand­tekið hann einu sinni fyrir að beita vopnum ólölega á landi í eigu hins opin­bera, meðal ann­ars sprengju­efni. Ekki liggur fyrir dóms­nið­ur­staða í því máli.

Too classy for the yacht club Ett foto publicerat av Dan Bilzerian (@danbilzerian) Sep 9, 2014 at 2:11 PDT

Það sem er algeng­ast á myndum hans er næstum alveg nakið kvenn­fólk, byssur af ýmsu tagi, sport­bílar og reiðufé. Yfir­leitt fylgja síðan stuttar setn­ingar með lýs­ingum á því sem er ger­ast. Eða ein­hver ein­kenni­leg skila­boð um eigið ágæti.

Viðskiptin - hvað á hann mikið af peningum?


En er Bilzerian bara glaum­gósi sem nýtur þess að baða sig í sviðs­ljós­inu? Nei. Svo er ekki. Hann er fjár­festir og atvinnupókerspil­ari. Í fjár­fest­ing­unum er hann sagður vera áhættu­sæk­inn, sem kemur kannski ekki mikið á óvart miðað við lífstíl­inn, en svo­lítið snjall sömu­leiðis þó reyndar séu deildar mein­ingar um það. Eignir hans eru metnar á 150 til 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða allt að 25 millj­arða króna. Hann er pókerspil­ari af lífi og sál, og græðir þar oft fúlgur fjár - en tapar oft líka. Þá hóf hann í byrjun árs að selja fyr­ir­tækjum aðgang að myndefni hans á Instagram, en hann sést oft með vopn frá banda­rískum vopna­fram­leið­lendum, og síðan einnig með tíma­rit, sem hefur verið greitt fyrir.



I'm doing the lords work... @tropicbeauty


A photo posted by Dan Bilzerian (@danbilzerian) on Jun 6, 2014 at 3:30pm PDT

Það er þó vel hugs­an­legt að þetta sé aðeins lít­ill hluti af raun­veru­legum eignum hans þar sem faðir hans, Paul Bilzerian, sem var fjár­festir á sínum tíma áður en hann varð gjald­þrota, kom undan eignum í sjóð sem kröfu­hafar hans gátu ekki nálg­ast (Trust fund). Paul hefur árum saman barist við banda­ríska fjár­mála­eft­ir­litið sem hefur sakað hann um að skjóta undan eignum, og nýta ólölegar leiðir til að ávaxta fast­eigna­verk­efni sín. Árið 2007 vann eft­ir­litið (SEC) sigur í máli gegn honum og fékk við­ur­kennda kröfu á hann upp 62 millj­ónir dala, eða ríf­lega sjö millj­arða króna. Paul hefur kært eft­ir­litið og hefur sagt að það sé að ofsækja hann fyrir ekk­ert.

Bilzerian virð­ist hins vegar hafa aðgang að gríð­ar­lega miklum fjár­munum, og hefur gaman af því að nota reiðufé þegar hann stundar við­skipti. Samkvæmt frétt frá Wall Street Journal gekk hann inn í spila­víti með fulla tösku af reiðufé og spil­aði þar. Það tónar við mynd­irnar sem hann birtir reglu­lega af sér á Instagram með reiðufé, naktar konur og byssur. Wall Street Journal segir enn fremur að skatt­ur­inn (IRS) í Banda­ríkj­unum sé far­inn athuga hvort ekki sé allt með felldu hjá Bilzerian.

Partýinu mun ein­hvern tím­ann ljúka hjá Dan Bilzerian, en hann virð­ist njóta pen­ing­ana sem hann fékk frá föður sínum, sem halda partý­inu gang­andi aug­ljós­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár