Sigrún Davíðsdóttir skorin niður í hálft starf hjá RÚV frá áramótum

Starf Sigrúnar Dav­íðs­dóttur, frétta­manns og pistla­höf­undar hjá RÚV sem stað­sett er í London, verður minnkað úr heilu starfi niður í hálft um kom­andi ára­mót. Þetta stað­festir Sigrún við Kjarnann. Frétta­skýr­ingar og pistlar Sigrúnar hafa um ára­bil verið fluttar í Spegl­inum, frétta­skýr­ing­ar­þætti í útvarpi RÚV. Sigrún hefur fjallað mest allra frétta­manna RÚV um efna­hags­mál og mál sem tengj­ast efna­hags­hrun­inu sem átti sér stað 2008. Umfjall­anir hennar hafa bæði verið um inn­lend mál sem erlend. Hún var meðal ann­ars valin frétta­maður árs­ins hjá RÚV árið 2009.

[caption id="attachment_14500" align="align­right" width="150"] Sigrún Dav­íðs­dóttir.[/caption]

Kjarninn greindi frá því í gær að framundan sé blóð­ug­asti nið­ur­skurður í sögu RÚV vegna fyr­ir­hug­aðrar lækk­unar á útvarps­gjald­inu. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans gerir rekstr­ar­á­ætlun RÚV ráð fyrir að fyr­ir­huguð lækkun útvarps­gjalds­ins muni leiða til nauð­syn­legs nið­ur­skurðar í rekstri félags­ins fyrir hátt í 700 millj­ónir króna á ári. Rekstr­ar­á­ætl­unin hefur verið yfir­farin af óháðum aðilum, að því er heim­ildir Kjarnans herma.

Ekki hætt, en mikil breyting


Sigrún seg­ist hafa fundið fyrir því á und­an­förnum árum að nor­rænir frétta­menn sem starfi erlendis hafi verið skornir mikið niður. Hún sé ekki hætt en breyt­ingin muni skerða svig­rúm hennar til að sinna starfi sínu. „ Mér var í haust boðið upp á það sem sam­svarar hálfu starfi, það kemur til fram­kvæmda um ára­mótin svo ég er ekki alveg hætt. Hins vegar breytir þetta miklu fyrir mig og gefur mér ekki sama svig­rúm og áður til sinna því sem ég tel skipta máli. Það verður bara að koma í ljós hvað verður.

[quote font="0" align="right"]Það er ögn dap­ur­legt að um leið og við sem vinnum erlendis finnum bæði fyrir meiri almennum áhuga heima fyrir á umfjöllun um erlend mál­efni og eins áhuga á að horfa á heima­landið utan frá í víð­ara sam­hengi, ekki aðeins undir pott­loki, þá skuli einmitt verið að loka þessum sjón­ar­hóli[/quote]

Á frétta­stof­unni hefur nið­ur­skurð­ur­inn í þess­ari umferð bitnað á okkur sem störfum erlendis. Ég hef séð það sama ger­ast und­an­farin ár meðal nor­rænna starfs­bræðra hér í London, þeir eru orðnir fáir hér og erlent efni þá unnið heima í sparn­að­ar­skyni. Það er ögn dap­ur­legt að um leið og við sem vinnum erlendis finnum bæði fyrir meiri almennum áhuga heima fyrir á umfjöllun um erlend mál­efni og eins áhuga á að horfa á heima­landið utan frá í víð­ara sam­hengi, ekki aðeins undir pott­loki, þá skuli einmitt verið að loka þessum sjón­ar­hóli.“

Sigrúnar seg­ist telja að glíma RÚV við stjórn­völd sé mikið áhyggju­efni, sér­stak­lega vegna þess að íslenskir einka­miðlar séu annað hvort und­ir­fjár­magn­aðir eða tengdir miklum sér­hags­munum. „Í íslensku fjöl­miðlaum­hverfi eru margir miðlar ýmist illa fjár­magn­aðir eða nátengdir sér­hags­munum sem bitnar bæði á frétta­efni og öðru efni. Þess vegna er glíma Rík­is­út­varps­ins við stjórn­völd um hlut­verk og fé kannski enn áhyggju­sam­legri einmitt á Íslandi þó sama sé að ger­ast hjá rík­is­fjöl­miðlum í öðrum löndum, til dæmis í Danmörku og Bret­landi. Allt er þetta hluti af sam­fé­lags­þróun sem sumir fagna og aðrir ótt­ast.“

Mikill niðurskurður framundan


Stjórn­endur RÚV fóru á fund fjár­laga­nefndar á föstu­dag eftir að nefnd­ar­menn höfðu óskað eftir upp­lýs­ingum um af hvaða stærð­argráðu nauð­syn­legur nið­ur­skurður hjá fyr­ir­tæk­inu yrði að óbreyttu.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans nefndu stjórn­endur RÚV að nið­ur­skurð­ur­inn væri svip­aður að umfangi og tvær Rás 1 og umtals­vert til vibótar, öll inn­lend dag­skrár­gerð í sjón­varpi eða allt frétta­svið RÚV, en það sinnir fréttum í öllum miðlum, veðri, frétta­skýr­ing­ar­þáttum á borð við Kastljós og starf­semi á lands­byggð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár