Norðmenn hafa ekki góða reynslu af flutningi opinberra stofnana

Skýrsla sem norska ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Asplan Viak vann fyrir þar­lend stjórn­völd árið 2009, í sam­vinnu við end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið PwC, dregur upp heldur dökka mynd af reynslu Norð­manna af flutn­ingi opin­berra stofn­anna á milli land­svæða. Skýrslan var unnin að beiðni stjórn­valda til að meta áhrif af flutn­ingi sjö opin­berra stofn­anna frá Ósló, en þeirra á meðal voru stofn­anir á sviði sam­keppn­is­mála, fjöl­miðla, póst- og fjar­skipta og sam­göngu­mála.

Eins og kunn­ugt er ákvað Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í sumar að flytja höf­uð­stöðvar Fiski­stofu úr Hafn­ar­firði norður til Akur­eyrar. Sér­stakur und­ir­bún­ings­hópur er nú að störfum, en stefnt er að því að flutn­ing­unum ljúki eigi síðar en 1. jan­úar 2017.

Í sjón­varps­fréttum RÚV um helg­ina var sagt frá til­lögum Norð­vest­ur­nefnd­ar­innar svoköll­uðu, en sam­kvæmt frétt RÚV eru flutn­ingar RARIK á Sauð­ár­krók, efl­ing Vinnu­mál­stofn­unar á Skaga­strönd, sem og mennta­stofn­anna á svæð­inu og flutn­ingur skipa­rekstur Land­helg­is­gæsl­unnar í Skaga­fjörð á meðal hug­mynda nefnd­ar­innar. Kostn­aður við aðgerð­irnar er tal­inn nema hund­ruðum millj­óna króna.

Norð­vest­ur­nefndin var skipuð fyrir til­stuðlan rík­is­stjórn­ar­innar í vor, til að vinna til­lögur um hvernig efla megi byggða­þróun, fjár­fest­ingar og fjölga atvinnu­tæki­færum á svæð­inu. Samkvæmt áður­nefndri frétt RÚV voru til­lögur nefnd­ar­innar kynntar á rík­is­stjórn­ar­fundi á föstu­dag.

Ákvörðun ráðherra vakti hörð viðbrögð


Ákvörðun sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra um að flytja höf­uð­stöðvar Fiski­stofu norður yfir heiðar vakti upp hörð við­brögð, og ekki síst meðal starfs­manna stofn­un­ar­innar. Til þessa hefur aðeins einn starfs­maður þegið boð stjórn­valda um að flytj­ast með stofn­un­inni norður, en það er Eyþór Björns­son, fiski­stofu­stjór­inn sjálfur. Þá hefur Þórður Ásgeirs­son, for­veri Eyþórs í starfi, kallað fyr­ir­hug­aðan flutn­ing höf­uð­stöðva Fiski­stofu til Akur­eyrar „óskilj­an­legt glapræði“ í fjöl­miðlum. Með ákvörðun sinni sé ráð­herra að kasta á glæ margra ára víð­tækri reynslu starfs­manna stofn­un­ar­innar.

Spjótin hafa staðið á Sigurði Inga Jóhanns­syni sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra frá því að hann til­kynnti um ákvörðun sína. Í við­leitni sinni til að rétt­læta hana, hefur ráð­herra vísað til reynslu nágranna­þjóða af flutn­ingi opin­berra stofn­anna á milli land­svæða. Í við­tali hjá frétta­stofu RÚV lét hann til að mynda eft­ir­far­andi ummæli falla: „Ef við horfum bara til reynslu til þeirra landa sem við gjarnan horfum til, til að mynda Norð­manna sem að hafa staðið í slíkum flutn­ingum á störfum frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu út um land þá hefur reynslan verið sú að starf­semin blómstrar eftir á en það tekur auð­vitað alltaf ákveð­inn tíma.“

Starfs­menn Fiski­stofu hafa í tvígang form­lega óskað eftir því að ráð­herra leggi fram gögn sem stað­festi ofan­greinda full­yrð­ingu, síð­ast með bréfi sem sent var í dag, þar sem ósk þeirra var ítrekuð. Þá hafa starfs­menn­irnir sömu­leiðis óskað eftir sund­ur­lið­uðum upp­lýs­ingum um kostn­að­inn sem hlýst af flutn­ingi Fiski­stofu til Akur­eyrar, meðal ann­ars með til­liti til húsa­leigu, breyt­ingum á hús­næði nýrra höf­uð­stöðva, flutn­inga á bún­aði, vegna nýrra ráðn­inga og þjálf­unar starfs­fólks, greiðslu launa í upp­sagn­ar­fresti og ann­arra þátta er snerta ákvörðun ráð­herra að flytja höf­uð­stöðvar stofn­un­ar­innar til Akur­eyrar.

Slæm reynsla Norðmanna


Í áður­nefndri skýrslu sem unnin var fyrir norsk stjórn­völd, þar sem áhrif af flutn­ingi sjö opin­berra stofn­anna á milli land­svæða voru metin, kemur fram að þorri starfs­manna þeirra sagði upp störfum og illa hafi gengið að ráða hæft starfs­fólk í þeirra stað, að hag­ræn áhrif á svæðin sem þær fluttu til hafi verið lítil sem engin, og engin sparn­aður hafi verið fólgin í flutn­ingi þeirra.

Samkvæmt skýrsl­unni hættu að jafn­aði 75 til 90 pró­sent starfs­manna þeirra stofn­anna sem fluttar voru búferlum. Þar hafi upp­sveifla í norska hag­kerf­inu haft mikið að segja, bæði hvað varðar upp­sagnir, og eins hversu illa við­kom­andi stofn­unum gekk að ráða nýja starfs­menn í stað þeirra sem hættu. Þá hafi stofn­anir orðið fyrir mik­illi blóð­töku þegar reynslu­miklir starfs­menn sögðu upp störfum, sem hafi haft lam­andi áhrif á starf­semi stofn­anna sem hafi ekki náð upp fullum afköstum fyrr en eftir langan tíma.

Þá er nið­ur­staða skýrslu­höf­unda að flutn­ingur stofn­anna hafi lítil hag­ræn áhrif haft á svæðin sem þær voru fluttar til. Sömu­leiðis hafi engin sparn­aður verið fólgin í því að flytja opin­berar stofn­anir á milli land­svæða.

Í skýrsl­unni kemur fram að flutn­ingur þeirra sex stofn­anna sem til skoð­unar voru í rann­sókn­inni, hafi kostað norska ríkið 729 millj­ónir norskra króna árið 2008, röska 12,3 millj­arða íslenskra króna miðað við gengi dags­ins í dag, eða ríf­lega 1,7 millj­arð íslenskra króna á stofnun. Þá hafi kostn­aður við flutn­ing hvers stöðu­gildis numið 650 þús­undum til 1,4 millj­óna norskra króna, eða tæpa 10,1 milljón til rúm­lega 23,6 millj­óna íslenskra króna.

Þá leggja skýrslu­höf­undar áherslu á mik­il­vægi þess að á við­kom­andi svæði, sem flytja á við­kom­andi stofnun til, sé til staðar sam­keppn­is­hæft vinnu­afl til að standa undir starf­semi hennar. Því sé mik­il­vægt að ráð­ast ekki í flutn­ing stofn­unnar fyrr en að und­an­geng­inni grein­ingu á því hvort full­nægj­andi mannauður sé til staðar á því svæði sem til stendur að flytja stofnun til.

Samkvæmt skýrsl­unni er flutn­ingur stofn­anna á milli land­svæða mörgum van­kvæðum bund­inn. Að byggja upp stofnun á nýjum stað sé mjög krefj­andi og kostn­að­ar­samt, meðal ann­ars vegna flutn­inga og svo taki það við­kom­andi stofnun langan tíma að ná upp fullum afköstum á nýjum stað. Fluttar stofn­anir færi vissu­lega svæðum, sem þær eru fluttar til, nýja verð­mæta og hæfa vinnu­staði, en önnur jákvæð áhrif á svæðin séu veru­lega tak­mörkuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár