Pressan og DV fá undanþágu frá samkeppnislögum

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur veitt Press­unni ehf. und­an­þágu­heim­ild frá sam­keppn­is­lögum til að ganga frá sam­runa sínum við DV á meðan að eft­ir­lits­stofn­unin fjallar um hann. Fjöl­miðla­fyr­ir­tækin tvö geta því byrjað að sam­þætta verk­lag og þjón­ustu, meðal ann­ars aug­lýs­inga­sölu. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur stað­fest þetta við Kjarnann.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins send bréf­lega í morgun. Und­an­þágu­heim­ildin sem um ræðir varðar bann við sam­runa fyr­ir­tækja á meðan hann er til umfjöll­unar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Heim­ildir Kjarnans herma að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi upp­lýst hlut­að­eig­andi, að rann­sókn eft­ir­lits­ins á sam­run­anum gangi vel og afgreiðslu sé að vænta innan skamms. Ekkert óvænt hafi komið upp í þeirri vinnu.

Jafnan er sett hefð­bundið skil­yrði við und­an­þágu­heim­ild­ina, að ekki sé gripið til neinna aðgera sem gera það ómögu­legt að láta sam­runa fyr­ir­tækja ganga til baka.

Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að nú muni hefj­ast und­ir­bún­ings­vinna hjá hinu sam­ein­aða fyr­ir­tæki við sam­eig­in­lega stoð­þjón­ustu, svo sem bók­hald, tölvu- og mark­aðs­mál, og aug­lýs­inga­sölu. Þá mun Björn Ingi Hrafns­son, stjórn­ar­for­maður Pressunnar og vænt­an­legur útgef­andi DV, eiga ein­stak­lings­fundi með hverjum starfs­manni DV á morgun, en hann hyggst sömu­leiðis kynna sér starf­semi blaðs­ins, rekstur þess og fram­tíð­ar­sýn, að því er heim­ildir Kjarnans herma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár