Segja tekjufærslu á 21 milljarði króna byggja á „áætlun“ um hagnað

Minni hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar telur að asi á því að tekju­færa 21 millj­arð króna hjá rík­is­sjóði vegna lækk­unar á eigin fé Seðla­banka Íslands sé allt annað en traust­vekj­andi, enda bygg­ist tekju­færslan á „áætlun“ um hagnað af rekstri Seðla­bank­ans á yfir­stand­andi ári. Hann mun því ekki sitja hjá við afgreiðslu frum­varps til laga sem lög­festir nýja arð­greiðslu­reglu fyrir Seðla­banka Íslands. Í áliti minni hlut­ans segir að með því sé hann að „vísa ábyrgð á því á hendur stjórn­ar­meiri­hlut­anum“.

Undir álitið skrifa Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri grænna, Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Guð­mundur Stein­grims­son, for­maður Bjartrar fram­tíðar.

Lækka eigið fé Seðlabanka og auka tekjur ríkissjóðs


Kjarninn greindi frá því í byrjun októ­ber að til stæða að leggja fram frum­varp um að lög­festa nýja arð­greiðslu­reglu fyrir Seðla­banka Íslands. Verði frum­varpið að lögum mun Seðla­bank­inn borga allan hagnað yfir ákveðið lág­marks eigið fé til rík­is­sjóðs sem arð­greiðslu. Frum­varpið var síðan lagt fram 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar kom fram að „Heild­ar­fjár­hæð inn­kall­an­legs eigin fjár […]er 52 millj­arðar kr. Eft­ir­stöðvar inn­kall­an­legs eigin fjár fær­ast upp við hver ára­mót með hækkun vísi­tölu neyslu­verðs“.

Arð­greiðslur Seðla­bank­ans til rík­is­sjóðs gætu auk­ist til muna á næstu árum verði lögum um þær breytt. Frumvarp um slíka breyt­ingu var lagt fram 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

[caption id="attachment_14164" align="alignnone" width="640"] Frum­varpið snýst um að breyta arð­greiðslu­reglu Seðla­bank­ans. Það tryggir rík­is­sjóði miklar tekjur til skamms tíma.[/caption]

Samkvæmt frum­varp­inu mun við gild­is­töku lag­anna, verði þau sam­þykkt, verða„heim­ilt að lækka stofnfé rík­is­sjóðs í Seðla­banka Íslands um 26 millj­arða króna“. Líkt og Kjarninn hefur þegar greint frá mun sú upp­hæð fara í að lækka skulda­bréf sem ríkið skuldar Seðla­bank­anum um 26 millj­arða króna, í 145 millj­arða króna. Sú aðgerð gerir það að verkum að vaxta­greiðslur rík­is­ins vegna skulda­bréfs­ins verða 8,1 millj­arður króna á næsta ári.

Í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2015 segir að þessi nýja arð­greiðslu­regla geri „ráð fyrir því að auknar vaxta­tekjur vegna skulda­bréfs­ins skili sér aftur til rík­is­sjóðs í formi arð­greiðslu þar sem nýja reglan gerir ráð fyrir að allur hagn­aður bank­ans verði greiddur til rík­is­sjóðs sé eigið fé bank­ans yfir skil­greindu við­miði“.

Með nýju arð­greiðslu­regl­unni gætu því vext­irnir sem ríkið greiðir af skuld sinni við Seðla­bank­ann skilað sér aftur til rík­is­sjóðs í formi arð­greiðslu í lok hvers árs.

Segja frumvarpið setja Alþingi í klemmu


Efnahags- og við­skipta­nefnd hefur haft málið til umfjöll­unar. Minni hluti hennar skil­aði nefnd­ar­á­liti í dag. Þar gerir hann athuga­semdir við hversu seint málið barst til Alþingis og segir að málið sé þannig fram sett og í þannig sam­hengi af hálfu stjórn­ar­meiri­hlut­ans að „það setur Alþingi í veru­legan vanda. Þetta stafar af því að gert er ráð fyrir tekj­unum frá Seðla­bank­anum í frum­varpi til fjár­auka­laga sem lagt var fram og fjallað um á undan því máli sem hér hefur verið til umfjöll­unar. Minni hlut­inn leggur áherslu á að ótækt sé að setja Alþingi í slíka klemmu“.

[quote font="0" align="right"] Minni hlut­inn telur að sá asi sem er á því að tekju­færa 21 millj­arð kr. af 26 millj­arða kr. lækkun eigin fjár þegar á þessu ári sé allt annað en traust­vekj­andi, enda bygg­ist tekju­færslan á „áætlun“ um hagnað af rekstri Seðla­bank­ans á yfir­stand­andi ári.[/quote]

Síðar í álit­inu segir að „eðli­legri vinnu­brögð hefðu verið að lög­festa fyrst rammann um ný eig­in­fjár­við­mið Seðla­banka Íslands, láta því næst bank­ann og banka­ráðið ganga frá þeim reglum og leggja þá mat á hvort og þá hve mikil tekju­færsla ætti að eiga sér stað hjá rík­is­sjóði vegna lækk­unar á eigin fé Seðla­bank­ans.
Minni hlut­inn telur að sá asi sem er á því að tekju­færa 21 millj­arð kr. af 26 millj­arða kr. lækkun eigin fjár þegar á þessu ári sé allt annað en traust­vekj­andi, enda bygg­ist tekju­færslan á „áætlun“ um hagnað af rekstri Seðla­bank­ans á yfir­stand­andi ári. Ekki hefði þurft að byggja á „áætlun“ ef tekju­færslan hefði átt sér stað á næsta ári.

Minni hlut­inn mun í ljósi þeirra sjón­ar­miða sem hér hafa verið rakin sitja hjá við afgreiðslu máls­ins og vísa ábyrgð á því á hendur stjórn­ar­meiri­hlut­anum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár