Breytingartillaga um óbreytt útvarpsgjald felld á Alþingi

Breyt­ing­ar­til­laga stjórn­ar­and­stöð­unnar á Alþingi, við fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar, um að fallið verði frá lækkun útvarps­gjalds­ins, var felld í atkvæða­greiðslu á þing­inu í dag, með 34 atkvæðum gegn 23.

Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu er gert ráð fyrir að útvarps­gjaldið lækki úr 19.400 krónum í 17.800 krónur þann 1. jan­úar næst­kom­andi, og svo enn frekar í jan­úar árið 2016, þegar það verður 16.400. Lækkunin um ára­mótin hefur ekki áhrif á fram­lög rík­is­sjóðs til RÚV, sem fær 3,5 millj­arða króna sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar. Það er 119 millj­ónum króna meira en á yfir­stand­andi ári, en hækk­unin er til­komin vegna verð­lags- og launa­breyt­inga. Þá hefur félagið mögu­leika á 182 millj­ónr króna auka­fram­lagi úr rík­is­sjóði, að upp­fylltum skil­yrðum þó. Með breyt­ing­unni um ára­mótin lækka hins vegar tekjur rík­is­ins vegna útvarps­gjalds­ins um 300 millj­ónir króna á milli ára.

Síðar í dag verður kosið um síð­ari breyt­ing­ar­til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar hvað varðar RÚV, það er að útvarps­gjaldið hald­ist óbreytt og því skilað óskertu til félags­ins.

Magnús Geir Þórð­ar­son útvaps­stjóri sendi út ákall til Alþingis í dag, með færslu sem hann birti á Facebook síð­unni sinni. Þar sagð­ist hann vona að þingið myndi hlusta á þjóð sína og falla frá fyr­ir­hug­aðri lækkun á útvarps­gjald­inu.

Í áskorun stjórnar RÚV til Alþingis, sem send var þing­mönnum og fjöl­miðlum 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn, er lækkun útvarps­gjalds­ins harð­lega mót­mælt. Þá var þar full­yrt að nái lækk­unin fram að ganga blasi stór­felld breyt­ing á hlut­verki, þjón­ustu og starf­semi Rík­is­út­varps­ins með stór­tæk­ari nið­ur­skurð­ar­að­gerðum en áður hafi sést hjá félagnu. Þá hefur stjórn og stjórn­endur RÚV áður full­yrt að óbreytt og óskert útvarps­gjald myndi standa undir rekstri félags­ins. Eins og fram hefur komið er fjár­hags­staða RÚV afar bág­borin, félagið er yfir­skuld­sett, að mestu vegna gam­alla líf­eyr­is­sjóðs­skuld­bind­inga. Vonir standa til að fyr­ir­huguð eigna­sala hjá félag­inu muni rétta rekst­ur­inn af, en þar kemur einna helst til álita að selja Útvarps­húsið við Efsta­leiti, og lóð­ina við húsið ýmist saman eða í sitt hvoru lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár