Segir Íslending taka upp myndbönd ISIS-samtakanna

Sýr­lend­ingur, sem hefur flúið úr röðum ISIS-sam­tak­anna, segir að íslenskur kvik­mynda­gerð­ar­maður hafi gengið til liðs við sam­tökin og það útskýri fag­mann­lega unnin mynd­bönd sem notuð séu til að laða að nýja með­limi og áhorf­endur í Vest­rænum ríkjum. Á meðal þeirra mynd­banda sem ISIS-hefur dreift eru mynd­bönd af afhöfð­unum vest­rænna manna sem þau hafa verið með í haldi.

Frá þessu er greint í blogg­færslu sem birt­ist í gær á heima­síðu New York Review of Books. Grapevine greindi frá til­urð blogg­færsl­unnar í morgun.

ISIS-sam­tökin, sem ganga líka undir nafn­inu Íslamska Ríkið, hafa náð á sitt vald stórum svæðum í Írak og Sýrlandi og berj­ast hat­ram­lega gegn þar­lendum stjórn­völdum.

Í blogg­færsl­urnni, sem Sarah Birke, frétta­rit­ari The Economist í Mið­aust­ur­löndum og Norður-Afríku, skrifar, en hún býr í Damascus í Sýrlandi, kemur fram að Abu Hamza, sem hafði flúið úr röðum ISIS, hafi sagt henni að íslenskur kvik­mynda­gerð­ar­maður væri á meðal þeirra sem gengið hefðu til liðs við sam­tökun og að það væri ástæðan fyrir því að mynd­bönd þeirra væru jafn fag­mann­lega gerð og raun ber vitni.

ISIS skráði lén á Íslandi


Í októ­ber síð­ast­liðnum var greint frá því að ISIS hefði skráð lén með .is end­ingum. Um var að ræða Khilafah.is, frétta­síðu sam­tak­anna. ISNIC, sem fer með léna­skrán­ingu .is léna, lok­aði lénum sem ISIS not­að­ist við þann 12. októ­ber á grund­velli reglna fyr­ir­tæk­is­ins um léna­skrán­ingu, þar sem fram kemur að rétt­hafa léns beri að ábyrgj­ast að notkun léns sé í sam­ræmi við íslensk lög.

Þetta var í fyrsta og eina skiptið sem ISNIC hefur lokað léni vegna inni­halds hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár