Már verður í jólapeysunni, búist við stýrivaxtalækkun

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri mun kynna nýja vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands í jóla­peysu. Þetta stað­fest­ist seint í gær­kvöldi þegar áheit á hann á heima­síð­unni www.jolapeysan.is fóru yfir 600 þús­und krónur. Már verður fyrsti seðla­banka­stjóri Íslands­sög­unnar til að kynna nýja stýri­vexti í jóla­peysu. Hann hafði fall­ist á beiðni Barna­heilla um að styðja átak gegn ein­elti sem nú er í gangi með því að klæð­ast jóla­peysu við þetta til­efni ef áheit á hann færu yfir 600 þús­und krónur. Í morgun stóðu áheitin í 604 þús­und krónum og því ljóst að tak­mark­inu er náð.

Vef útsend­ingin verður aðgengi­leg hér og hefst klukkan 10:00.

Búist við frekari lækkun


Í nóv­em­ber lækk­uðu stýri­vextir um 0,25 pró­sent og standa nú í 5,75 pró­sentum. Einn nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd­inni var á móti lækk­un­inni en fjórir greiddu atkvæði með henni. Það var í fyrsta sinn í rúm tvö ár sem vextir voru lækk­aðir hér­lendis. Stýri­vextir eru samt sem áður með þeim hæstu í vest­rænum heimi hér­lendis.

Í ljósi þess að verð­bólga mælist nú um eitt pró­sent og hag­vöxtur virð­ist,sam­kvæmt nýbirtum frum­gögnun Hagstofu Íslands, hafa verið ein­ungis 0,5 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í ár þegar flestar spár gerðu ráð fyrir að hann yrði um og yfir þrjú pró­sent, er talið lík­legra en ella að vextir verði lækk­aðir aftur í dag.

Tilkynnt verður um vaxta­á­kvörð­un­ina á vef Seðla­bank­ans klukkan 8:55 í dag. Klukkan 10:00 hefst síðan vefút­send­ing þar sem Már Guð­munds­son, í jóla­peys­unni, og Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­bank­an­stjóri færa rök fyrir ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar.

Ljóta jólapeysan á sér merkilega sögu


Hall­grímur Oddsson, hag­fræð­ingur og sér­fræð­ingur Kjarnans í ljótum jóla­peysum, fjall­aði ítar­lega um sögu hennar í hljóð­pistli um helg­ina. Þar kom fram að ljóta jóla­peysan hafi síð­ast­liðin ár notið sívax­andi vin­sælda og aldrei verið vin­sælli en nú fyrir jólin 2014.

[caption id="attachment_13798" align="alignnone" width="500"] Bill Cosby er einn upp­hafs­manna ljótra jóla­peysa.[/caption]

Stórar versl­un­ar­keðjur fram­leiða eigin jóla­peysur og annan föstu­dag í des­em­ber verður Ljótu jóla­peysu­dag­ur­inn hald­inn hátíð­legur í fjórða sinn. Ólík­leg­asta fólk hefur grætt háar fjár­hæðir á því að sýsla með ljótar jóla­peysur, en vin­sældir upp­runa­legu peysunnar má rekja aftur til 9. ára­tug­ar­ins, meðal ann­ars til hins umdeilda Bills Cosby.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár