Lækkun á heimsmarkaði á olíu skilar sér ekki í vasa íslenskra neytenda

Þrátt fyrir að heims­mark­aðs­verð á olíu hafi hríð­fallið frá því í sumar hefur verð á því elds­neyti sem íslenskir neyt­endur þurfa að kaupa sér, og þeirri þjón­ustu sem verð­leggur sig í takt við þróun olíu­verðs, ekki lækkað nærri jafn mikið.

Í júní 2014 kost­aði tunna af Brent-olíu 115,9 dali. Verð á henni í dag er 66,75 dalir og því hefur hún lækkað um 42,4 pró­sent á örfáum mán­uðum. Verðið hefur ekki verið lægra í rúm fjögur ár. Ástæðan er minnk­andi eft­ir­spurn, sér­stak­lega vegna þess að Banda­ríkin fram­leiða nú meira af orku og flytja mun minna inn en áður.

Þessi mikla lækkun hefur ekki skilað sér í vasa íslenskra neyt­enda. Þann 13. júní 2014 var sjálfs­af­greiðslu­verð á 95 okt­ana bens­íni á Íslandi 249,9 krónur á líter. Í dag er lægsta sjálfs­af­greiðslu­verðið 217,5 krónur. Það hefur því lækkað um 12,8 pró­sent á sama tíma og heims­mark­aðs­verð á olíu hefur lækkað um 42,4 pró­sent.

[caption id="attachment_10890" align="alignnone" width="800"] Icelandair lækkað elds­neyt­is­gjaldið sitt um 15 pró­sent um síð­ustu mán­að­ar­mót.[/caption]

Vefurinn túristi.is sagði frá því um helg­ina að Icelandair, langstærsta flug­fé­lagið sem ferjar Íslend­inga til og frá land­inu, hefði lækkað elds­neyt­is­gjald sitt um 15 pró­sent um síð­ustu mán­að­ar­mót. Gjaldið er hluti af far­miða­verði margra flug­fé­laga og hjá Icelandair nemur þetta gjald stundum meira en helm­ingi af verði flug­mið­ans. Icelandair lækk­aði elds­neyt­is­gjaldið hjá sér um 15 pró­sent um síð­ustu mán­að­ar­mót. Þá lækk­aði elds­neyt­is­gjaldið fyrir Evr­ópu­ferðir úr 9.200 krónum í 7.900 krónur og úr 16.400 krónum í 13.900 krónur ef flokið er til Norður- Ameríku.

Þessi lækkun er mun lægri en sem nemur lækkun á heims­mark­aðs­verði á olíu.

Veikari króna útskýrir ekki seinaganginn


Sögulega hafa íslenskir elds­neyt­is­salar gefið tvenns­konar skýr­ingar á því að þeir lækki ekki útsölu­verð á elds­neyti sam­hliða lækkun á heims­mark­aði. Í fyrsta lagi vegna þess að gengi íslensku krón­unnar gagn­vart banda­ríska dalnum hafi veikst og það tefji lækk­un­ar­ferlið. Á því tíma­bili sem um er að ræða, frá júní til des­em­ber 2014, hefur krónan sann­ar­lega veikst um 8,2 pró­sent gagn­vart dalnum. Að teknu til­liti til þeirrar lækk­unar hefur heims­mark­aðs­verð á olíu samt lækkað um 37,3 pró­sent, eða mun meira en lækkun á útsölu­verði á elds­neyti hefur verið hér­lendis.

Hin ástæðan er sú að olíu­fé­lögin séu með upp­safn­aðar birgðir af elds­neyti sem keypt hafi verið á hærra verði. Samkvæmt þeirri skýr­ingu mega íslenskir neyt­endur búast við skar­pri lækkun næst þegar birgð­irnar verða end­ur­nýj­aðar.

Sjálfs­af­greiðslu­verð á bens­íni á Íslandi í dag er á bil­inu 217,5 til 217,9 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár