Stjórnarformaður FME ekki hætt og neitar að mæta fyrir þingnefnd

Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir, stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME), hefur ekki viljað mæta fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd til að svara fyrir fjöl­mörg álita­mál tengd við­skiptum hennar þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir þar um. Nefnd­ar­mönnum var gefin sú skýr­ing að Halla Sigrún myndi láta af störfum sem stjórn­ar­for­maður FME eftir stjórn­ar­fund 3. des­em­ber síð­ast­lið­inn, en í kjöl­far umfjöllun fjöl­miðla um við­skipti hennar til­kynnti Halla Sigrún að hún myndi hætta í starf­inu í lok þessa árs.

Halla Sigrún hætti ekki eftir fund­inn 3. des­em­ber og situr enn sem stjórn­ar­for­maður FME. Þetta kom fram í umræðum um fund­ar­stjórn for­seta í Alþingi í dag.

[caption id="attachment_10673" align="align­right" width="150"] Halla Sigrún Hjalta­dóttir, stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.[/caption]

Halla Sigrún hagn­að­ist um lið­lega 830 millj­ón­ir króna þegar gengið var frá sölu á Skelj­ungi og fær­eyska olíu­fé­lag­inu P/​F Magn í lok árs 2013.Við­skipti hennar og tveggja við­skipta­fé­laga hennar, Einars Arnar Ólafs­sonar og Kára Þórs Guð­jóns­sonar, með fyr­ir­tækið Fjarð­ar­lax hafa líka verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum.

Ef menn ætla að víkja úr starfi, þá þurfa þeir að víkja úr starfi


Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og nefnd­ar­maður í efna­hags- og við­skipta­nefnd, hóf umræð­una og sagði að nefndin hefði „ítrekað reynt á und­an­förnum vikum að fá á fund nefnd­ar­innar stjórn­ar­for­mann Fjár­mála­eft­ir­lits­ins til þess að fjalla um þá stöðu sem upp er komin eftir ítrek­aðan frétta­flutn­ing af málum sem hún hefur á fyrri tíð komið að og varða sölu á eignum í fyrri störfum hennar. Við höfum fengið þau svör við þeirri marg­ít­rek­uðu mála­leitan að hún hygg­ist ljúka störfum í kjöl­far stjórn­ar­fundar í Fjár­mála­eft­ir­lit­inu 3. des­em­ber. Hún hefur ekki fundið hjá sér tíma til þess að mæta fyrir nefnd­ina á þeim tímum sem gef­inn hefur verið kostur á. Svo heyrum við það frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu að hún sitji sem fast­ast sem stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Ef menn ætla að víkja úr starfi þá þurfa þeir að víkja úr starfi. Þeir geta ekki setið í starfi og virt að vettugi eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis og rétt þing­nefnda til þess að kalla trún­að­ar­menn stjórn­valda á sinn fund“.

Þing­menn­irnir Svandís Svav­ars­dóttir, Guð­mundur Stein­gríms­son, Helgi Hjörvar og Jón Þór Ólafsson tóku undir með Árna Páli.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um mál Höllu Sigrúnar í lok októ­ber og byrjun nóv­em­ber. Í þeirri umfjöllun kom meðal ann­ars fram að hún hefði 36faldað fjár­fest­ingu sínu í fær­eyska olíu­fé­lag­inu P/F Magn á einu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár