Fyrirspurn um skiptingu Leiðréttingarinnar ekki svarað fyrr en í vor

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur svarað ítar­legri fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttir, for­manns Vinstri grænna, um nið­ur­færslu verð­tryggðra fast­eigna­veð­lána.

Í svar­inu er fyr­ir­spurn­inni, sem er í 15 liðum, ekki svarað heldur sagt að ráð­herr­ann hygg­ist leggja „fyrir Alþingi ítar­lega skýrslu um nið­ur­stöður höf­uð­stólslækk­unar hús­næð­is­lána þar sem m.a. verður fjallað um þau atriði sem spurt er um í þess­ari fyr­ir­spurn. Skýrslan mun byggj­ast á stöðu úthlut­unar eins og hún verður við lok sam­þykk­is­frests á ráð­stöfun leið­rétt­ing­ar­fjár­hæðar en eins og er vantar of mikið upp á end­an­legar nið­ur­stöður til að skyn­sam­legt sé að draga nægi­lega mark­tækar álykt­anir um þetta mál. Reiknað er með því að skýrslan verði til­búin og kynnt á vor­þingi“.

Aðgerð­irnar snú­ast um að láta 80 millj­arða króna renna úr rík­is­sjóði í nið­ur­greiðslu á hús­næð­is­lánum, eða í formi sér­staks per­sónu­af­sláttar, þeirra Íslend­inga sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009.

[caption id="attachment_11791" align="alignnone" width="1024"] Leið­rétt­ingin, skulda­nið­ur­fell­ing rík­is­stjórn­ar­innar á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum, kostar rík­is­sjóð um 80 millj­arða króna.[/caption]

Hversu margir sem greiddu auðlegðarskatt fengu höfðustólslækkun?


Þegar útfærsla á nið­ur­fell­ingum rík­is­stjórn­ar­innar var kynnt var það gert með glæru­kynn­ingu. Í þeirri glæru­kynn­ingu vant­aði mikið af upp­lýs­ingum um skipt­ingu nið­ur­fell­ing­ar­upp­hæð­ar­innar á milli til dæmis tekju- og ald­urs­hópa. Þar vant­aði líka upp­lýs­ingar frá­drátt­ar­liði og hvernig upp­hæðin dreif­ist á mis­mun­andi lands­svæði.

Katrín Jak­obs­dóttir lagði fram fyr­ir­spurn í 15 liðum um málið þann 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Svar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra barst í dag í því fólst, líkt og áður sagði, að hún muni fá svör við fyr­ir­spurn sinni í skýrslu sem verði skrifuð og á að verða kynnt á kom­andi vor­þingi.

Fyr­ir­spurn Katrínar hljóð­aði svo:


  1. Hvernig skipt­ist heild­ar­upp­hæð þeirrar fjár­hæðar sem varið verður til lækk­unar verð­tryggðra fast­eigna­veð­lána ein­stak­linga milli höf­uð­stólslækk­unar og frá­drátt­ar­liða?
    2. Hverjir eru frá­drátt­ar­lið­irnir og hver er skipt­ingin milli þeirra í upp­hæðum?
    3. Hvert er heild­ar­hlut­fall beinnar höf­uð­stólslækk­unar, þ.e. lækk­unar höf­uð­stóls að und­an­skildum frá­drátt­ar­liðum, af verð­tryggðum fast­eigna­veð­lánum?
    4. Hve mikið hafa verð­tryggð lán hækkað frá árinu 2007?
    5. Hve mikið hefði 20% skulda­nið­ur­færsla lækkað verð­tryggð fast­eigna­veð­lán heim­il­anna?
    6. Hve mikið hefði 250 millj­arða kr. skulda­nið­ur­færsla lækkað verð­tryggð fast­eigna­lán heim­il­anna?
    7. Hver væri upp­hæð leið­rétt­ingar ef hún mið­að­ist við að verð­tryggð hús­næð­is­lán væru færð niður um fjár­hæð sem sam­svarar verð­bótum umfram 4,8% sem féllu til á tíma­bil­inu des­em­ber 2007 til ágúst 2010?
    8. Hver væri upp­hæð leið­rétt­ingar ef hún mið­að­ist við að verð­tryggð hús­næð­is­lán væru færð niður um fjár­hæð sem sam­svarar verð­bótum umfram 2,5% sem féllu til á tíma­bil­inu des­em­ber 2007 til ágúst 2010?
    9. Hversu margir umsækj­endur um skulda­nið­ur­færslu fá enga beina höf­uð­stólslækkun?
    10. Hversu margir fram­telj­endur sem greiddu auð­legð­ar­skatt fá nið­ur­færslu?
    11. Hversu há upp­hæð rennur til þeirra fram­telj­enda sem borga auð­legð­ar­skatt?
    12. Hvernig dreif­ist heild­ar­upp­hæðin á tekju­bil hvers tíunda hluta fyrir sig? Hver er fjöldi fram­telj­enda á bak við hvert tekju­bil?
    13. Hve stór hluti heild­ar­upp­hæð­ar­innar fer til fólks með tekjur yfir mið­gildi tekna?
    14. Hvernig dreif­ist heild­ar­upp­hæðin eftir þeim lands­hlutum þar sem fram­telj­endur eru búsettir?
    15. Hve stór hluti heild­ar­upp­hæð­ar­innar fer til fram­telj­enda sem eru yfir með­al­aldri?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár