Kínamúrar og kerfisbundið rangar spár um hagvöxt

Ólafur Hjálm­ars­son, hag­stofu­stjóri, segir í orð­send­ingu til Kjarnans, í til­efni af skrifum um mik­inn mun á hag­vaxt­ar­spá Hag­stof­unnar, frá 14. nóv­em­ber, og síðan raun­gögnum um hag­vöxt sem birt­ust 5. des­em­ber, að munur sé á hlut­verkum rann­sókn­ar­deildar Hagstofu Íslands ann­ars vegar og síðan Hag­stof­unnar sjálfrar hins vegar. „Af því til­efni er rétt að benda á að rann­sókn­ar­deildin sem m.a. sér um að gera þjóð­hags­spá er aðskilin annarri starf­semi Hag­stof­unnar og hefur sama aðgang að hag­skýrslum og aðilar utan Hag­stof­unnar,“ segir Ólafur, og leggur áherslu á að það sem oft er nefnt Kínamúr, þegar upp­lýs­inga­flæði er ann­ars vegar, eigi við um rann­sókn­ar­deild­ina og aðra starf­semi Hag­stof­unnar. Þetta skýri meðal ann­ars, hvers vegna him­inn og haf er á milli spár­innar, sem birt­ist í nafni Hagstofu Íslands 14. nóv­em­ber, og síðan mæl­ing­ar­innar 5. des­em­ber.

Titringur


Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa nýj­ustu upp­lýs­ingar Hag­stof­unnar um hag­vöxt, frá 5. des­em­ber valdið þó nokkrum titr­ingi. Margir aðilar á mark­aði hafa sett sig í sam­band við Hag­stof­una og spurt hvernig standi á því að hag­töl­urnar sýni allt aðra þróun en flestar spár gerðu ráð fyrir, og þar á meðal spá rann­sókn­ar­deildar Hag­stof­unnar sömu­leiðis. Hinn 14. nóv­em­ber kom fram spá hennar um 2,7 pró­sent hag­vöxt en þremur vikum síðar, 5. des­em­ber, sýndu raun­gögnin 0,5 pró­sent hag­vöxt á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og 0,2 pró­sent nei­kvæðan vöxt á þriðja árs­fjórð­ungi.

[caption id="attachment_13987" align="alignnone" width="573"] Myndin er fengin úr nýlegri hag­spá Lands­bank­ans.[/caption]

Spár helstu grein­ing­ar­að­ila á mark­aði, þar á meðal Seðla­banka Íslands og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, gera ráð fyrir mun meiri hag­vexti á þessu ári en mælst hefur til þessa. Sér­stak­lega er það mikil dýfa í einka­neyslu á þriðja árs­fjórð­ungi sem hefur valdið mörgum heila­brotum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Þykjast sumir þeirra sem greina stöðu á mark­aði ekki sjá þessa dýfu í algengum mæli­kvörðum á einka­neyslu, til dæmis í korta­veltu. Hæstu spárnar gera ráð fyrir 3,1 pró­sent hag­vexti á þessu ári, frá grein­ingu Íslands­banka og ASÍ.

Seðlabankinn tjáir sig á morgun


Kjarninn leit­aði við­bragða hjá Þórarni G. Pét­urs­syni, aðal­hag­fræð­ingi Seðla­banka Íslands, í gær vegna hagtaln­anna frá Hag­stof­unni og síðan spátaln­anna sem birst hafa. Þórarinn sagð­ist því miður ekki geta tjáð sig um þetta mál þar sem reglur banna það svo stuttu fyrir vaxta­á­kvörðun Seðla­bank­ans, en hún verður kynnt í fyrra­málið. Á morgun megi búast við að stjórn­endur hjá Seðla­bank­anum tjái sig um þetta, eins og önnur atriði sem spurt verður um. Margir búast við vaxta­lækkun, en stýri­vextir eru í dag 5,75 pró­sent á meðan verð­bólga mælist 1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár