Íslenska ríkið borgar 50 milljónir króna vegna aðgerða NATO í Úkraínu

Íslend­ingar munu taka þátt í sam­stöðu­að­gerðum NATO í Úkraínu á næsta ári með því að leggja til borg­ara­legan sér­fræð­ing, með rekstr­ar­fram­lagi til eft­ir­lits­verk­efna ÖSE í Úkraínu og við­bót­ar­starfs­mann í eft­ir­litsteymi stofn­un­ar­innar. Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri hluta fjár­laga­nefndar um frum­varp til fjár­auka­laga fyrir árið 2014 sem var lagt fram í gær.

Kostn­aður vegna þessa verður sam­tals 50 millj­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að á fundi utan­rík­is­ráð­herra NATO-ríkj­anna, sem fór fram þriðju­dag­inn 2. des­em­ber og mið­viku­dag­inn 3. des­em­ber í höf­uð­stöðvum NATO í Brussel, hefði Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, for­dæmt aðgerðir Rússa í Úkraínu. Að baki þeirri for­dæm­ingu stóðu utan­rík­is­ráð­herrar allra NATO-ríkj­anna 28. Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, sat fund­inn fyrir Íslands hönd.

„28 fyrir 28 árið 2015“


[caption id="attachment_13470" align="alignnone" width="1024"] Á fund­inum í síð­ustu viku sagði Jens Stol­ten­berg: „28 fyrir 28 árið 2015.“ Það þýðir að Ísland mun einnig leggja eitt­hvað að mörkum til þeirra, þrátt fyrir að landið sé her­laust. Kostn­aður vegna fram­lags Íslands verður 50 millj­ónir króna. Hér sjást allir utan­rík­is­ráð­herrar NATO-ríkj­anna ásamt Stol­ten­berg á fund­inum í síð­ustu viku.[/caption]

Utan­rík­is­ráð­herr­arnir tóku tvær ákvarð­anir varð­andi aðkomu NATO að ástand­inu í Úkraínu á fund­inum. Í fyrsta lagi mun verða mynd­aður tíma­bund­inn við­bragðs­her­afli (e. interim spe­ar­head force) sem mun geta brugð­ist við ef á þarf að halda innan örfárra daga eftir að þjón­ustu hans verður óskað. Þessi her­afli, sem verður undir merkjum NATO, mun aðal­lega verða sam­an­settur af her­mönnum frá Þýska­landi, Hollandi og Noregi.

Í öðru lagi var ákveðið að við­halda við­veru banda­lags­ins við austur-landa­mæri þess. Ástæða þessa er sú ógn sem stafar af til­burðum Rússa í Úkraínu og víðar á áhrifa­svæði rík­is­ins gagn­vart þeim NATO-aðild­ar­ríkjum sem eiga landa­mæri að óróa­svæðum.

Stol­ten­berg sagði að öll 28 ríki NATO munu taka þátt í þessum aðgerðum. Á blaða­manna fundi fyrir viku sagði hann: „28 fyrir 28 árið 2015.“ Það þýddi að Ísland myndi einnig leggja eitt­hvað að mörkum til þeirra, þrátt fyrir að landið sé her­laust.

Nú er komið í ljós hvert það fram­lag er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár