Blikur á lofti - hagvöxtur langt undir spám

Staðan í efna­hags­málum Íslands er snúin um þessar mundir. Enn einu sinni virð­ast hag­fræð­ingar ekki vera að spá rétt fyrir um hag­vöxt, en að þessu sinni munar mun meiru en venju­lega. Samkvæmt nýj­ustu Hag­tíð­indum Hagstofu Íslands var nei­kvæður hag­vöxtur á þriðja árs­fjórð­ungi, sem nam 0,2 pró­sentum. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins var hag­vöxtur ein­ungis 0,5 pró­sent en Hagstofa Íslands hafði sjálf spáð 2,7 pró­sent fyrir þetta ár, í spá sem hún birti um miðjan nóv­em­ber.

Hagvöxtur fyrir neðan spár


Til sam­an­burðar gerðu spár þeirra sem greina stöðu á mark­aði hér á landi, grein­ing­ar­deilda bank­anna og Seðla­banka Íslands, ráð fyrir því að hag­vöxtur á árinu verði í kringum þrjú pró­sent á þessu ári. Fátt bendir til þess að svo verði, sé mið tekið af tölum Hagstofu Íslands. Líklega verður hag­vöxt­ur­inn í kringum eitt til tvö pró­sent. Þetta kunna að líta út fyrir að vera sak­leys­is­legar tölur á blaði, en svo er ekki. Í því sam­hengi má nefna að ein af for­sendum fyrir fjár­lögum 2015 er að hag­vöxtur verði 3,4 pró­sent á næsta ári.

Það má ekki mikið útaf bregða, þó ýmsir hafi verið óþreyt­andi við að benda á það að Ísland sé komið upp úr kreppu­á­standi og á leið inn í betri tíma.

Ísland er hlekkur í alþjóð­legri keðju við­skipta – þrátt fyrir fjár­magns­höftin – og er háð eft­ir­spurn eftir vörum og þjón­ustu hér á landi erlendis frá. Þar eru nú uppi miklar áhyggju­raddir og sums staðar er bein­línis uppi mikil hræðsla við ástandið, t.d. í Rúss­landi og Japan, þriðja stærsta hag­kerfi heims­ins. Þar dróst hag­kerfið saman um 1,6 pró­sent sem leiddi til mik­illa póli­tískra svipt­inga. Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Japans, boð­aði þau tíð­indi að kosn­ingum yrði flýtt og seðla­bank­inn boð­aði örv­un­ar­að­gerðir. Á sama tíma hefur Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn áhyggjur af því að hjól efna­hags­lífs­ins í Kína snú­ist hægar nú en áður, með til­heyr­andi marg­feld­is­á­hrifum á heims­vísu.

"We are not here to envy China’s growth or to look at their growth as a curse to Japan" http://t.co/haPruETmey pic.twitter.com/6RDDsTx655

— The Economist (@TheEconomist) December 7, 2014

Lítið að gerast í Evrópu

Það sama á raunar við um stöðu mála í Evrópu. Á vett­vangi Evr­ópu­sam­bands­ins hefur verið deilt um hvort eyða eigi meira púðri í að ná tökum á rík­is­fjár­mál­unum eða örva hag­vöxt. Það er að stækka kök­una, og minnka þannig hlut­falls­lega skuld­setn­ingu þjóð­ríkja, eða fara strax í sárs­auka­fullan nið­ur­skurð útgjalda með til­heyr­andi áhrifum. Eins og staða mála er núna eru hag­töl­urnar ekki of jákvæðar. Hag­vöxtur er lít­ill, 0,6 pró­sent á evru­svæð­inu öllu.

Spurn­ingin er þá kannski; hvað áhrif hefur þetta á Ísland? Það er ekki svo gott að segja til um það, en til lengdar litið er þetta áhyggju­efni fyrir Ísland þar sem hag­kerfið er háð eft­ir­spurn erlendis frá eftir vörum og þjón­ustu. Gamla tuggan um að ál, orka, fiskur og ferða­þjón­usta haldi okkur uppi, er að miklu leyti rétt, þó að margt annað sé nauð­syn­legt og skapi mikil verð­mæti, ekki síst nýsköp­un­ar­starf­semi ýmis konar.

Einkaneysla og vaxtaákvörðun


Athygli vekur að á þriðja árs­fjórð­ungi þá jókst einka­neysla lítið sem ekk­ert, eða um 0,7 pró­sent miðað við sama tíma­bil frá árinu á undan. Þetta ætti að koma ráða­mönnum lands­ins nokkuð á óvart, miðað við hvernig þeir hafa talað, og eflaust mörgum hag­fræð­ingum líka.

Það er vaxta­á­kvarð­ana­dagur framundan á mið­viku­dag­inn hjá Seðla­banka Íslands. Pen­inga­stefnu­nefndin lækk­aði stýri­vexti í síð­asta mán­uði um 0,25 pró­sentu­stig en þeir eru nú 5,75 pró­sent. Á sama tíma mælist verð­bólga um eitt pró­sent á árs grund­velli. Í ljósi fram kom­inna upp­lýs­inga um að hag­vöxt­ur­inn sé ekki eins mik­ill og reiknað hafði verið með og verð­bólga tölu­vert undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið­inu þá er ekki ólík­legt að vextir muni lækka nokkuð á næst­unni. Það virð­ast í það minnsta vera ástæður til þess. Spár hafa komið fram um 0,25 pró­sent lækkun vaxta á mið­viku­dag­inn og síðan aftur 0,25 pró­sent í febr­úar á næsta ári. Ekki er þó úti­lokað að vextir gætu lækkað skarpar í ljósi þess að það eru blikur á lofti, en sagan sýnir þó að best sé að fara var­lega þegar kemur að því að spá fyrir um miklar vaxta­lækk­anir hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár