Útgönguskattur kynntur fyrir samráðsnefnd um afnám fjármagnshafta

Tvær áætl­anir sem tengj­ast losun fjár­magns­hafta voru kynntar fyrir sam­ráðs­nefnd stjórn­mála­flokk­anna um afnám hafta í hádeg­inu í dag, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Önnur áætl­unin snýst um að knýja eig­endur aflandskróna til að skipta eignum sínum yfir í skulda­bréf til meira en 30 ára og hin snýst um flatan útgöngu­skatt á allar eignir sem vilja yfir­gefa íslenska hag­kerfið. Slíkur skattur myndi leggj­ast jafnt á inn­lendar sem erlendar eignir.

Á fund sam­ráðs­nefnd­ar­innar komu Glenn Kim, for­maður fram­kvæmda­stjórnar um losun fjár­magns­hafta, og Lee Buchheit, fyrir hönd lög­fræði­stof­unnar Cleary Gottlieb Steen & Hamilton, sem er einn helsti ráð­gjafi stjórn­valda.

Útgönguskattur á alla


Önnur kall­ast Project Slack og snýst um að láta eig­endur aflandskróna, sem í dag eru um 300 millj­arðar króna, skipta krónu­eignum sínum yfir í skulda­bréf í erlendum myntum til meira en 30 ára á afslætti. Morg­un­blaðið hefur sagt frá til­urð þess­arrar áætl­unar áður.

[quote font="0" align="right"]Það þýðir líka að allir íslenskir aðilar sem vilja fara út úr höftum með fé, skipta krónum í gjald­eyri, þurfa að greiða útgöngu­skatt­inn líka. [/quote]

Hitt sem var kynnt fyrir nefnd­inni var hug­mynd um flatan útgöngu­skatt á allar eignir sem vildu fara út fyrir höft. Það þýðir að skatt­ur­inn myndi leggj­ast á bæði inn­lendar og erlendar eignir þrota­búa Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans. Það þýðir líka að allir íslenskir aðilar sem vilja fara út úr höftum með fé, skipta krónum í gjald­eyri, þurfa að greiða útgöngu­skatt­inn líka. Á meðal þeirra sem hefðu áhuga á að kom­ast út hratt eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Þeir þyrftu þá að borga umræddan skatt ef þeir vildu kom­ast út úr höft­unum.

Þeir Kim og Buchheit ræddu hins vegar ekk­ert um hversu hár útgöngu­skatt­ur­inn ætti að vera, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Morg­un­blaðið hefur sagt að hann eigi að vera 35 pró­sent og Bloomberg-frétta­veitan sagði í frétt fyrr í dag að rætt hefði verið um að skatt­ur­inn yrði 20-45 pró­sent. Á fund­inum kom hins vegar skýrt fram að mark­mið til­lagn­anna væri ekki að afla tekna fyrir íslenska ríkið, heldur að afnema fjár­magns­höft. Það þýði samt ekki að ríkið geti ekki hagn­ast mjög á aðgerð­unum, enda stærð þrota­búa föllnu bank­anna um tvö þús­und millj­arðar króna.

Hitta slitastjórnirnar á morgun


Kim og Buhcheit hitta síðan slita­stjórnir Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans allar saman á fundi á Grand hótel klukkan 14 á morgun. Í bréfi sem var sent til slita­stjórn­anna kom fram að þær ættu að kynna afstöðu sína til þeirra skil­yrða sem stjórn­völd setja fyrir veit­ingu und­an­þága frá fjár­magns­höftum, sem er for­senda þess að hægt verði að klára nauða­samn­inga búanna og slíta þeim.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans sögðu menn­irnir tveir við sam­ráðs­nefnd­ina í dag að til­gangur fund­ar­ins væri að hlusta á kröfu­hafa föllnu bank­anna og þær hug­myndir sem þeir hefðu um lausn á sínum málum. Þeir hefðu enda ítrekað sagt að nóg væri af lausnum á vanda­mál­inu. Ekki stæði til að kynna þeim nein skil­yrði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár